menningarminjar o.fl.
Virðulegi forseti. Ég fór aðeins yfir það áðan hve vitlaust það er að flytja stofnanir til innan stjórnkerfisins vegna áhuga ráðherra sem situr tímabundið í embætti, ég tala nú ekki um þegar það er að hámarki ár þar til hæstv. ráðherra, forsætisráðherra í þessu tilfelli, fer úr því ráðuneyti, og vonandi fyrr. Hvar stöndum við þá? Ef Alþingi ætlar að samþykkja að það verði keyrt hér í gegnum þingið að flytja stofnun í ráðuneyti til ráðherra sem hugsanlega verður farinn þegar lögin taka gildi, þá mætir málaflokkurinn allt í einu engum áhuga í ráðuneytinu og verður sendur annað, það verður fundinn annar ráðherra til að finna honum stað.
Ég er hlynntur sameiningu stofnana. Ég vann að sameiningu stofnana hér á síðasta kjörtímabili. Ég nefni Samgöngustofu sem var sameinuð úr þrem öðrum stofnunum, Umferðarstofu, Siglingastofnun og Vegagerðinni. Við gáfum okkur góðan tíma í það. Ef ég man rétt þá tók umræðan hér í þinginu um þrjú ár. Það voru tvö og hálft til þrjú ár sem við ræddum um þetta hér, í þingnefndum, í þinginu, við veltum þessu fram og til baka. Við höfðum samráð við alla aðila, starfsfólk, fagaðila. Það lágu fyrir ítarlegir útreikningar á mati á faglegum áhrifum og fjárhagslegum áhrifum. Er einhver að tala um það í dag að þetta hafi gengið illa? Nei, þetta tókst vel.
Ég nefni minni stofnanir eins og rannsóknastofnanir slysa. Það tók jafn langan tíma, miklu minni stofnanir, örstofnanir. Það gekk ágætlega fyrir sig. Er einhver að tala um það núna að fara til baka? Nei, vegna þess að verkið var vel undirbúið og við tókum umræðuna um þetta við alla hagsmunaaðila og málin kláruðust. 47 millj. kr. sparnaður er fjárhagslegur ávinningur af þessu að mati hæstv. forsætisráðherra. Ég hefði gjarnan viljað sjá kostnaðarmat úr fjármálaráðuneytinu líflegt og skemmtilegt eins og við vorum vön að fá hér (Forseti hringir.) í eina tíð. Ég er algjörlega sannfærður um að starfsfólk fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins hefði ekki komist að þessari niðurstöðu.