145. löggjafarþing — 91. fundur,  18. mars 2016.

menningarminjar o.fl.

606. mál
[18:33]
Horfa

Björn Valur Gíslason (Vg) (andsvar):

Forseti. Ég tek undir orð hv. þm. Valgerðar Bjarnadóttur, sem ég hef reyndar nefnt hér áður. Ég tel að við hljótum öll að vera þeirrar skoðunar, hvar sem við erum í stjórnmálunum, hvar sem við skipum okkur í flokk, að alvarleg staða er komin upp í íslenskum stjórnmálum. Það liggur fyrir að forsætisráðherra Íslands hefur orðið uppvís að því að koma fé úr landi rétt fyrir hrun, rétt fyrir gjaldeyrishöft, og í alvörugjaldmiðla; hann hefur forðað sér undan krónunni sem hann hefur síðan reynt að sannfæra okkur hin um að sé besti gjaldmiðill í heimi, meðan hann hefur ávaxtað sitt fé eða sitt pund í orðsins fyllstu merkingu í skattaskjólum. Það er alvarlegur hlutur. Þessu hefur hann leynt þinginu, þjóðinni og samráðherrum sínum. Upp er komin sú staða í íslenskum stjórnmálum að ég held að elstu menn muni ekki annað eins, þetta er það alvarlegt mál.

Í því ljósi er það nánast eins og brandari að vera að ræða um áhugamál forsætisráðherrans sem virðist ekki hafa neinar pólitískar hugsjónir. Hann er fyrst og fremst tómstundastjórnmálamaður sem er í stjórnmálum af því að hann langar til að sinna áhugamálum sínum. Hvar eru pólitísku hugsjónirnar? Hvar er pólitíkin í frumvarpinu? Hvaða stjórnmál eru þetta? Ekki snefill af hugsun í frumvarpinu, það er enginn sem mælir með því. Enginn aðili utan eða innan þings nema Sjálfstæðisflokkurinn, þetta er á ábyrgð hans. Þetta frumvarp væri ekki hér nema Sjálfstæðisflokkurinn hefði hleypt þessari vitleysu hingað upp. Allir stjórnmálaflokkar og þingflokkar með sómakennd hefðu stoppað þetta mál af. Algjörlega. Þess vegna á þetta ekki að vera hérna, þetta er hrokafullt frumvarp. Þetta tengist ekki (Forseti hringir.) stjórnmálum á neinn hátt, það tengist áhugamáli tiltekinnar persónu og að mínu mati ætti í það minnsta að íhuga hvort það væri þingtækt.