menningarminjar o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég hélt því fram að ekkert samráð hefði verið haft við gerð þessa frumvarps. Það má orða það með öðrum hætti og segja að ekki hafi verið hlustað á neitt af því sem kom út úr því litla samráði sem haft var. Ég bendi á það og vísa til þess að þegar frumvarpið var lagt fram var sagt að það væri afrakstur af samráði og gert í samráði við tiltekna aðila. Þeir aðilar komu af fjöllum. Þeir höfðu ekki hugmynd um það. Þeir höfðu ekki séð frumvarpið. Þeir þurftu að senda tölvupóst upp í forsætisráðuneyti til að fá frumvarpið sent. Samráðið var ekki meira en það.
Ég vísa til bréfs frá Félagi fornleifafræðinga þar sem segir að þeir hafi verið boðaðir á fund í Capacent, sem hélt utan um málið að einhverjum hluta fyrir hönd forsætisráðuneytisins, þar sem þetta mál var rætt. Það var fjöldi fólks sem kom úr greininni og geiranum. Fundarefnið var a) á að gera einhverja breytingar á málaflokknum, b) á að leggja til minni háttar breytingar á verkefnum, tilfærslu eða aukið samstarf milli stofnana, eða c) leggja til sameiningu þessara stofnana.
Niðurstaðan er þessi, með leyfi forseta:
„Allir sem sátu fundinn voru sammála um að sameining Minjastofnunar og Þjóðminjasafns Íslands væri slæm hugmynd.“
Það voru ekki sumir, ekki helmingur, ekki níu af hverjum tíu heldur allir, hver einasti var sammála því að sameiningin væri slæm hugmynd. En samt er frumvarpið lagt fram. Þess vegna stend ég við það sem ég sagði og held því fram fullum fetum. Og það kemur fram í fleiri umsögnum, eins og ég las upp áðan, til að mynda í umsögn frá Félagi (Forseti hringir.) safna og safnamanna þar sem segir beinlínis að með frumvarpinu sé verið að ráðast í miklar breytingar á skömmum tíma og ekki haft samráð við hagsmunaaðila. (Forseti hringir.) Það er mjög auðvelt að færa rök fyrir þessu, ekki síst þegar menn koma af fjöllum þegar frumvarpið er lagt fram og hagsmunaaðilar hafa ekki hugmynd um það, þótt öðru hafi verið haldið fram.