menningarminjar o.fl.
Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að taka undir með hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur þegar hún óskar eftir því að hæstv. forsætisráðherra láti svo lítið að sitja hér og taka þátt í umræðu um þetta mikla mál. Við eigum þessu ekki að venjast, virðulegi forseti, og við eigum ekki að láta eins og þetta sé eðlilegt. Þó að þessi hegðun ráðherrans hafi verið látin yfir okkur ganga allt þetta kjörtímabil eigum við ekki að venjast þessari hegðun og við eigum ekki að láta hana yfir okkur ganga. Við eigum að gera kröfu til þess að ráðherra sem mælir fyrir máli sé í þingsal meðan umræðan á sér stað. Við eigum að gera kröfu til þess og við gerum hana núna úr því að forseti ætlar að halda því til streitu að vera hér með fleiri ræður þegar klukkan er orðin sjö á föstudagskvöldi fyrir páskaleyfi. Það er algjörlega fráleitt þegar umræðunni er ekki að ljúka og lýsir engu öðru en skorti á viðleitni til (Forseti hringir.) að halda góðum samskiptum í þinginu. Krafa mín er algjörlega skýr, sú að forsætisráðherra komi hingað og taki þátt í þessum samtölum. Ég bið forseta að beita þunga til þess að kalla á forsætisráðherra.