dagskrá fundarins.
Virðulegi forseti. Ég hef oft spurt mig undanfarinn vetur sem ég hef setið hér á þingi hvort ég búi virkilega í vestrænu lýðræðisríki. Ég held að það sem kom í ljós í gærkvöldi sýni að svo er ekki. Ísland er undir auðvaldsstjórn og það er ekki eitthvað sem ég ætla að sætta mig við.
Með leyfi forseta er kannski við hæfi að vitna í ummæli sem mörkuðu á sínum tíma endalok ömurlegs tímabils í bandarískri stjórnmálasögu: „Hefurðu enga sómakennd, herra? Er í alvörunni ekki vottur af sómakennd eftir?“
Virðulegi forseti. Þessum orðum beini ég til hæstv. forsætisráðherra.