145. löggjafarþing — 92. fundur,  4. apr. 2016.

dagskrá fundarins.

[15:53]
Horfa

Róbert Marshall (Bf):

Virðulegur forseti. Um hvað erum við að tala þegar þau fyrirmæli koma úr forsetastóli að vera ekki með svigurmæli hér í þingsal? Um hvað erum við að ræða hér í þessu þjóðfélagi?

Undanfarnar tvær vikur og allt þetta kjörtímabil, og lengur en það, hefur hæstv. forsætisráðherra haldið hagsmunum sínum leyndum fyrir þjóðinni. Síðast í gærkvöldi horfði öll heimsbyggðin á hann reyna að ljúga því að hann ætti ekkert í þessu fyrirtæki. Hann varð ber að beinum lygum í sjónvarpi. Það er verið að horfa á það úti um allan heim. Eigum við að gæta að ummælum okkar hér í ræðustól á Alþingi, virðulegur forseti? Er það nú aðalatriðið?

Hver einasta mínúta sem líður án þess að nokkuð gerist í ríkisstjórn Íslands skaðar orðspor og ímynd Íslands á alþjóðavettvangi. Við skulum gæta að því fyrst.