145. löggjafarþing — 92. fundur,  4. apr. 2016.

dagskrá fundarins.

[16:06]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Myndin sem dregin var upp af hæstv. forsætisráðherra í Kastljóssþætti gærkvöldsins var afar slæm og á skjánum og á heimilum fólks úti um allan heim birtist mynd af hæstv. forsætisráðherra Íslands í afar slæmum félagsskap. Ég hugsaði með mér: Það getur ekkert orðið eins og áður í stjórnmálum eftir þetta. Hæstv. forsætisráðherra mun auðvitað segja af sér og við hin munum hefjast handa við að vinna að því að skaðinn verði sem minnstur.

Hæstv. forseti. Ef við látum eins og ekkert sé leyfum við hæstv. forsætisráðherra að draga alla stjórnmálamenn á Íslandi inn í þennan slæma félagsskap. Við megum ekki láta það gerast. Ef hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) sér ekki sóma sinn í því að segja af sér sjálfur þá verðum við í þessum þingsal (Forseti hringir.) að sjá til þess að hann geri það.