viðbrögð ráðherra við álitshnekki Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka ágæta spurningu. Það hefur verið umfjöllun um þetta mál erlendis, eins og reyndar fjölmörg mál sem tengjast hinum svokölluðu Panama-skjölum. Og enn sé ég að eru að birtast nýjar fréttir um einstaklinga tengda stjórnmálum, íþróttum og ýmsu öðru sem koma þar við sögu. Hvað varðar spurninguna um viðbrögð sem hv. þingmaður ber hér upp tel ég skipta öllu máli að bregðast við með því að veita réttar upplýsingar. Það hlýtur að vera mikilvægast að veita réttar og sannar upplýsingar. Það hlýtur að vera mikilvægt að það berist réttar og sannar upplýsingar frá öllum, frá þeim sem málið varðar beint en líka frá öðrum sem spurðir eru álits, að þeir svari af hreinskilni um hvað er rétt í málinu og hvað ekki.
Hvað varðar umfjöllun erlendra fjölmiðla almennt eru þeir eins og menn þekkja jafn misjafnir og þeir eru margir. En ég vil taka aftur fram það sem ég nefndi aðeins áðan að það er ánægjulegt að sjá að í ýmsum fjölmiðlum sem vanda skrif sín um þessi mál, og auðvitað er þetta gríðarlega víðfeðmt mál sem varðar marga í mörgum löndum, hafa þeir þó séð ástæðu til að taka fram að ekkert bendi til þess að neitt misjafnt hafi verið hér á ferð varðandi skattamál þessa fyrirtækis.