145. löggjafarþing — 92. fundur, 4. apr. 2016.
viðbrögð ráðherra við álitshnekki Íslands.
Virðulegi forseti. Telur hæstv. ráðherra að með þeim svörum sem hann hefur veitt hér á hinu háa Alþingi og í fjölmiðlum takist að bjarga Íslandi frá þeim ímyndarhnekki sem það hefur orðið fyrir? Trúir hæstv. ráðherra því í alvörunni? Telur hæstv. ráðherra að viðhorfið erlendis, segjum í Þýskalandi eða Bretlandi, breytist og það fari skyndilega að þykja í lagi að ráðherrar og æðstu stjórnendur ríkisins séu í þeirri stöðu sem hæstv. forsætisráðherra og fjölskylda hans er hvað varðar Tortólu?