breytingar á ríkisstjórn.
Herra forseti. Þegar ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks tók við völdum vorið 2013 kynnti hún stefnuyfirlýsingu þar sem sagði í inngangi:
„Ríkisstjórnin mun leitast við að virkja samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn því sundurlyndi og tortryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál og umræðu í samfélaginu um nokkurt skeið.“
Eftir stærstu mótmæli Íslandssögunnar og eftir að hæstv. fyrrverandi forsætisráðherra hefur ákveðið að stíga til hliðar með 10% traust held ég að óhætt sé að segja að það markmið hafi ekki tekist. Þá má velta því fyrir sér hvaða trausts sú ríkisstjórn sem nú hefur tekið við, sömu flokka, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, njóti, ekki aðeins hér á Íslandi heldur ekki síður erlendis þar sem augu alheimsins beinast að okkur og hvernig við ætlum að takast á við það alvarlega mál, þau alvarlegu tíðindi sem hafa skekið íslenskt samfélag.
Þó að ég óski hæstv. nýjum forsætisráðherra til hamingju með nýtt embætti finnst mér að ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sé orðin eins og partí sem hefur staðið of lengi, partí sem átti að ljúka á miðnætti en stendur enn í blokkinni; klukkan er orðin þrjú, nágrannar eru búnir að hringja á lögguna. Almenningur er mættur á Austurvöll og biður ríkisstjórnina vinsamlegast um að fara og að boðað verði til kosninga. Það eru meira að segja einstaka gestir í þessu partíi sem eru búnir að hringja á bíl, þeir eru farnir að hugsa sér til hreyfings. Þeir benda á, til dæmis hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir, að allir ráðherrar með tengsl við aflandsfélög eigi að segja af sér. Fyrrverandi forsætisráðherra á að segja af sér þingmennsku, segir hv. þm. Höskuldur Þór Þórhallsson. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson bendir á að mál hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra sé algjörlega sambærilegt við hans eigin mál. Við getum dregið þá ályktun að hann eigi þá að stíga til hliðar eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefur sjálfur gert. Hv. þm. Vigdís Hauksdóttir segist vilja kosningar strax. Það vita allir að partíið er búið.
En partíhaldarinn heldur áfram. Hann ætlar að spila Wild Boys einu sinni enn eða kannski nokkrum sinnum enn, selja nokkra banka, eftir því sem mér heyrist á hæstv. forsætisráðherra, afnema verðtrygginguna og gera það sem þessir partígestir telja að þeir geti einir gert, afnema höft sem á að vera þverpólitískt viðfangsefni og ljúka umbótum í húsnæðismálum sem hefur raunar ekki gengið því að stjórnarflokkarnir tveir hafa ekki náð saman um það. Þeir hafa ekki náð saman um umbætur í húsnæðiskerfinu.
Þó að ég óski hæstv. forsætisráðherra til hamingju er ég ansi hrædd um að hans bíði erfitt verkefni.
Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tók við vorið 2013 fékk hún upp í hendurnar samfélag þar sem almenningur hafði sýnt gríðarlegan dugnað og mikla fórnfýsi við að koma fótunum undir samfélagið eftir efnahagshrunið til að leggja grunn að bjartari tímum. Allt var til staðar til að hefja mætti uppbyggingu heilbrigðiskerfis, menntakerfis, velferðarkerfis, allt var til staðar til þess að endurnýja mætti traust almennings á stjórnmálum. Farið hafði verið í mikilvægar breytingar á skattkerfinu. Miklum árangri hafði verið náð í að ná tökum á ríkisfjármálum. Mikil vinna hafði verið unnin við að endurlífga atvinnulífið. Það var hægt að halda áfram; stíga næstu skref í endurreisninni.
Við höfum líka farið í gegnum uppgjör við hrunið sem alla vega mörg okkar trúðu að mundi leiða til aukins trausts á stofnunum samfélagsins, á stjórnmálunum, á lýðræðinu. Við höfum haldið þjóðfund, unnið rannsóknarskýrslu og tekið mikilvæga umræðu hér á Alþingi um hvernig við ættum að halda áfram til að byggja upp traust, til að byggja á því gildi sem almenningur á Íslandi taldi mikilvægast á þjóðfundinum fræga 2009; og það var heiðarleiki.
Ríkisstjórnin lofaði öllu fögru. Hún ætlaði ekki bara að vinna í þágu almannahags, virkja samtakamátt þjóðarinnar, vinna gegn sundurlyndi og tortryggni eða pólitískri óvissu; hún ætlaði líka að standa að víðtækri sátt á vinnumarkaði, treysta undirstöður velferðar, hlúa að þeim sem höllum fæti standa, svo að fátt eitt sé nefnt.
Hvað stendur eftir af þessum markmiðum, herra forseti? Eða voru þau kannski bara misskilningur eins og margt annað? Að minnsta kosti talaði hinn nýi forsætisráðherra nokkrum sinnum um það í gær, í óundirbúnum fyrirspurnatíma, að hann hefði verið misskilinn og fetar þar í fótspor fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra sem oft var misskilinn mörgum sinnum á dag. Hér voru nefnilega allar forsendur til að hefja stórsókn í átt að betra samfélagi. En hver er staðan í uppbyggingu heilbrigðismála? 85.000 Íslendingar hafa undirritað áskorun um að það beri að verja meiru til heilbrigðismála. Skoðanakannanir sýna að almenningur vill byggja upp félagslegt heilbrigðiskerfi rekið af hinu opinbera. Ríkisstjórnin leggur fram tillögur um að auka einkarekstur í grunnstoðum heilbrigðisþjónustunnar í heilsugæslunni sjálfri. Það er svar ríkisstjórnar við því sem almenningur hefur margoft lýst skoðun sinni á í skoðanakönnunum.
Skattkerfinu hefur verið breytt til baka frá breytingum fyrra kjörtímabils þar sem markvisst var unnið að því að þeir sem mest hefðu á milli handanna tækju á sig meiri byrðar en hinir sem hefðu úr minna að spila. En þessu skattkerfi hafnaði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og gerði það að sínu forgangsmáli að draga úr getu ríkissjóðs til að ráðast í þau mikilvægu verkefni að fara að byggja upp velferðarkerfið. Hvert var forgangsmál ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks? Við munum það öll, það var að lækka veiðigjöldin.
Síðan var ákveðið að framlengja ekki auðlegðarskattinn. Það var ákveðið að framlengja ekki orkuskattinn. Það var farið í það að fækka þrepum í þrepaskipta skattkerfinu sem miðast einmitt við það að dreifa byrðunum með réttlátum hætti og á móti var matarskatturinn hækkaður þvert þó á vilja annars flokksins í þessu ágæta partíi. Hverjum gögnuðust þessar skattbreytingar? Voru þær fyrir almenning í landinu? Nei, þetta var í þágu stórútgerðarinnar. Þetta var í þágu álfyrirtækjanna. Þetta var í þágu hinna ríku. Þó að einhverjir vilji kalla hina nýju ríkisstjórn stigamannastjórnina í gamni, eftir athyglisverðan blaðamannafund sem forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar héldu hér í fyrrakvöld í stiga Alþingis, þá er ég ansi hrædd um að það nafn sem eigi eftir að festast á þessa ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks sé ríkisstjórn ríka fólksins. Ekki veit ég hvernig hv. þingmönnum Framsóknarflokksins, sem oft hefur unnið til vinstri, líður með þá nafngift og þá arfleifð.
Tíðindin sem núna eru mál málanna, herra forseti, eru þau að fámennur hópur ríkra Íslendinga eigi eignir í skattaskjólum, að fámennur hópur Íslendinga hafi skapað þær aðstæður að Ísland sé þekkt fyrir það í heiminum að hafa sett heimsmet í að setja á laggirnar aflandsfélög í skattaskjólum staðfestir að í þessu landi búa tvær þjóðir, það er íslenskur almenningur sem tókst á við afleiðingar hrunsins, tók á sig byrðarnar, fórnaði ýmsu og svo þessi fámenni hópur sem hafði sitt í öruggu skjóli. Þar má finna ýmsa auðkýfinga og þar má finna ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Ríkisstjórnin getur ekki horft fram hjá því að trúnaðarbrestur hefur orðið milli ráðamanna og almennings. Ég tel að ríkisstjórnin hafi glatað einstöku tækifæri í að halda áfram uppbyggingu íslensks samfélags og ekki aðeins tækifærinu til að byggja upp traust á milli stjórnmálanna og almennings í landinu, hún hefur gjörsamlega eytt því litla trausti sem var til staðar og líka því trausti sem við höfum náð að afla okkur erlendis eftir hrun.
Það voru bundnar væntingar við þessa ríkisstjórn sem reyndust vera falskar. Þess vegna tel ég að almenningur þurfi að fá nýtt tækifæri og veita alþingismönnum nýtt umboð. Því að mikilvægasta verkefnið er að byggja upp traust á lýðræðinu í þessu landi, lýðræðinu sem er undirstaða samfélags okkar. Öll þau mikilvægu verkefni sem þessi ríkisstjórn telur sig eiga eftir að klára geta ekki verið mikilvægari en það að byggja upp traust á lýðræðinu í þessu landi. Ég tel að það muni reynast þessari ríkisstjórn ofviða.