breytingar á ríkisstjórn.
Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Ég held að ef allrar sanngirni sé gætt og allir líti á málin með þeim gleraugum geti enginn, jafnvel ekki í þessum sal, deilt um að mikill árangur hefur náðst í tíð þessarar ríkisstjórnar. Ég held að við finnum það á eigin skinni. Við velflest höfum það betra nú en árið 2013 þegar við tókum við. Það er ekki bara ríkisstjórninni að þakka en við höfum unnið að og komið farsællega í höfn mörgum gríðarlega mikilvægum málum.
Ég held að enginn geti heldur deilt um og enginn sé ósammála því að atburðir síðustu daga hafa verið erfiðir. Atburðir síðustu daga hafa valdið okkur vonbrigðum, atburðir síðustu daga eru ekki til þess fallnir að skapa sátt og samlyndi í samfélaginu. En það er á slíkum stundum sem það skiptir gríðarlega miklu máli hvernig brugðist er við. Ég ber virðingu fyrir því að fólk sé ósátt með þessa atburði. Ég ber virðingu fyrir því að þetta sé ekki sú staða sem við vildum vera í. Ég skal verða fyrst til að viðurkenna það. Mér þykir það mjög leiðinlegt og mjög erfitt að horfa til þess að hér erum við stödd aftur í þeim sporum að það ríkir sundurlyndi í landinu.
Ég hélt satt að segja og vonaði að við værum komin á annan og miklu betri stað. En þá er líka spurningin: Hvernig bregðumst við við slíkum aðstæðum? Það eru ýmsar leiðir í þeirri stöðu og ég held að allar séu þær tiltölulega slæmar. Niðurstaða ríkisstjórnarinnar, stjórnarflokkanna, var að bregðast við lýðræðinu, bregðast við ákalli fólksins, með þeim hætti að flýta kosningum. Forsætisráðherra brást við með því að yfirgefa forsætisráðuneytið og við tókum þá ákvörðun að halda áfram því ríkisstjórnarsamstarfi sem við höfum unnið farsællega saman í síðustu þrjú árin og flýta kosningum til haustsins.
Þá spyrja menn: Af hverju ekki að boða til kosninga strax? Þá kalla ég eftir því að við skoðum þetta öll sameiginlega af ábyrgð og sanngirni. Það er ekki rétt sem haldið er fram, að með öll þau mál sem eru á teikniborðinu, þá nefnum við haftamálin að sjálfsögðu í sérstökum flokki, skipti ekki máli hvernig þau verði til lykta leidd. Ég held að innst inni vitum við það öll.
Önnur mál eru líka í farvatninu sem ég held að verði ekki óskaplega mikil pólitísk átök um en skiptir máli að ljúka áður en lengra er haldið vegna þess að það er einfaldlega betra fyrir íslenska þjóð. Ég held að ekkert okkar eigi að taka þessa stöðu og hugsa hana út frá okkar eigin hagsmunum. Það er þar sem menn verða fyrst óábyrgir.
Ég get sagt að við getum alls ekki öll orðið sammála um þetta en ég held að við eigum öll — og það er það sem ég hef gert og við höfum leitast við — að hafa heildarhagsmuni að leiðarljósi. Þess vegna viljum við starfa áfram, þess vegna leggjum við hér fram þá niðurstöðu að við kjósum í haust þegar ákveðnum málum er lokið. Ég vil kalla stjórnarandstöðuna til samtals um það hvernig við ætlum að gera þetta á sem skynsamlegastan hátt, m.a. vegna þess að það er ábyrgðarhluti hvernig við sýnum fordæmi og vinnum hér saman. Við höfum ekkert verið sérstaklega góð í því á undanförnum árum. Eins og ég segi hélt ég að við værum að bæta ráð okkar en það er komið bakslag.
Ég var á nýsköpunarþingi í gær. Nýsköpun hefur á undanförnum árum vaxið, dafnað og þrifist hér sem aldrei fyrr. Við í þessari ríkisstjórn (Forseti hringir.) og þeir sem voru í ríkisstjórn áður höfum lagt okkur fram um að bæta það umhverfi. Það er til að mynda á verkefnalistanum að klára það, en það sem við skulum læra af nýsköpunarfyrirtækjunum er teymisvinna, komum saman í þetta verkefni, og það að þegar mistök eru gerð skulum við læra af þeim. Það óska ég að við getum gert á þessari stundu.