breytingar á ríkisstjórn.
Forseti. Nú kveðjum við verklausustu ríkisstjórn allra tíma og við tekur ný ríkisstjórn í nokkra mánuði. Ég geri ráð fyrir því að þessi ríkisstjórn hafi komið sér saman um að klára öll þau mál sem fyrri ríkisstjórn gat ekki gert eins og t.d. frumvörp um húsnæðismál.
Mig langaði að segja við ykkur, kæra nýja hæstv. ríkisstjórn, að því miður er það svo að veganesti ykkar er ekkert traust eða jú, það mælist um það bil 14% mikið traust til ykkar, en mjög lítið traust er um 55%. Hvernig ætlið þið að ávinna traust? Ég hef ekki heyrt neitt um það í dag frá þeim sem eru í forustu þessarar ríkisstjórnar, þá er ég að tala um hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra. En við erum í þeirri einkennilegu stöðu að formaður Framsóknarflokksins er enn þá sá forsætisráðherra sem sagði af sér.
Ég vil bara segja þetta: Ég hef ekkert við þessa nýju ríkisstjórn að segja, ekki neitt, fyrr en við förum að ræða um vantraustið sem hæstv. ríkisstjórn hlakkar svo ákaflega mikið til að ræða þannig að öll förum við væntanlega full af tilhlökkun í þær umræður. Ég vona að með þeim umræðum átti þingmenn stjórnarflokkanna sig á því að það er ekki bara í höfðinu á okkur þingmönnum minni hlutans sem vantraustið liggur, nei, það liggur í hjarta almennings. Hlustið á það.