145. löggjafarþing — 95. fundur,  8. apr. 2016.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

692. mál
[13:55]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Mjög skýr krafa var í samfélaginu vikuna áður en Kastljóssþátturinn var sýndur um að hefja undirbúning á vantrausti á þáverandi ríkisstjórn, sem ég minni reyndar á að var nákvæmlega sú sama og nú er, þessi ríkisstjórn er nákvæmlega sú sama og var hér í gær. Það eina sem hefur breyst er að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er orðinn hv. þingmaður í staðinn fyrir að vera hæstv. ráðherra. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er enn þá formaður Framsóknarflokksins og sagðist meira að segja, í staðinn fyrir að koma hingað og halda kveðjuræðu til að marka í raun og veru skýr skil á milli þessara tveggja ríkisstjórna, hlakka bara til að fara í frí, á launum hjá þinginu.

Mér finnst viðbrögð fráfarandi forsætisráðherra við þessum miklu tíðindum og þeim stormi sem kom yfir Ísland í tengslum við Panama-skjölin hafa verið okkur til skammar. Og að ekki einn einasti maður hafi komið upp í pontu í gær eða í dag til að biðjast afsökunar, ekki okkur þingmenn heldur þjóðina, að enginn hafi sagt: Fyrirgefðu. Við gerðum mistök; mér finnst slík framkoma svo einkennandi fyrir þá ríkisstjórn sem við erum með núna, mjög einkennandi.

Við skulum aðeins rifja upp nokkur mál hjá verklausustu ríkisstjórn allra tíma sem hafa verið mjög til umfjöllunar í íslensku samfélagi. Ég vil jafnframt nota tækifærið og þakka hæstv. utanríkisráðherra, Gunnari Braga Sveinssyni, fyrir að hjálpa Pírötum að verða í raun og veru til. Það var þegar hæstv. ráðherra fór með bréf til Brussel þar sem hann sniðgekk þing og þjóð að Píratar fóru að mælast í skoðanakönnunum. Vil ég nota tækifærið og þakka ráðherranum fyrir það. En ég vil ekki þakka ráðherranum fyrir þann óskunda sem ráðherrann gerði með því að sniðganga þingið og það eðlilega ferli sem ályktanir eiga að fara í. Ég vil ekki þakka ráðherranum fyrir að hafa svikið kjósendur sína með því að boða ekki til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður.

Ég vil líka minna á að við erum enn ekki komin með neina lausn sem átti að felast í svokölluðum náttúrupassa. Við erum ekki komin með neina lausn sem lýtur að umhverfi og hinum aukna straum ferðamanna hingað til lands og sér fram á neyðarástand ef fram heldur sem horfir. Síðan hef ég lesið í fjölmiðlum að möguleiki sé á að enn meiri straumur ferðamanna verði út af öllum fréttunum um hvað Ísland er skringilegt. Kannski heldur fólk að það þurfi að skoða Íslendinga sérstaklega miðað við höfðatöluna og skattaskjólin.

En það er náttúrlega ljóst, forseti, að skattaskjólsmálin eru mjög í anda þeirrar geðveiki sem einkenndi fjármálakerfið hið íslenska í aðdraganda hrunsins. Miðað við það sem maður sér er ljóst að það var víst enginn maður með mönnum nema að hafa peninga í skattaskjóli. Þetta var eitthvað sem bankarnir ýttu að fólki sem einmitt leið til að vera maður með mönnum, ja, eða eitthvað annað manni til hagsbóta ef maður er með fjármuni sína í skattaskjóli. Sú umræða er svolítið sérkennileg að það sé bara allt í lagi, eins og maður hefur heyrt hæstv. forsætisráðherra segja. Það sé allt í lagi að vera með peninga í skattaskjóli svo framarlega sem það er löglegt eða að menn borgi skatta. En ekki er hægt að sannreyna það hvort menn borgi skatta af því að það er ákveðin ástæða fyrir því að fólk fer með peningana sína í skattaskjól og hún væri ekki notuð hjá þeim sem eru fjársterkastir í landinu nema í einum tilgangi.

Það er staðreynd að við sitjum hér með skattamálaráðherra sem var formaður allsherjarnefndar með eignir í skattaskjóli, hann vissi ekki hvað varð um þær 40 milljónir, hvar þær væru eiginlega geymdar. Það er einhvern veginn ekki hægt að vera með trúverðugleika gagnvart fjármálaráðuneytinu og afnámi hafta með slíkan ráðherra, alveg sama þó að hann hafi gert allt löglegt, þá er það bara þannig að umheimurinn lítur á þetta sem siðlaust athæfi. Það er löngu kominn tími til að halda þeirri kröfu í heiðri sem kom upp í kjölfar hrunsins að við mundum hætta með þessa þröngu lagatúlkanir og færum að skoða anda laga og lifa eftir anda laga en ekki hvernig mætti nota sér lagatækni til að komast hjá því að vera heiðvirð manneskja í heiðvirðu samfélagi. Það kom svo skýrt fram á þjóðfundinum. Það var svo skýrt hvernig almenningur vildi sjá sig í kjölfar hrunsins. Það sem mest var um talað að ætti að endurspegla þjóðina sem ákveðna upprisu úr hörmulegu tímabili voru kjörorðin: heiðarleiki, gagnsæi, ábyrgð. Erum við að sjá þessa ríkisstjórn bregðast við því á einhvern hátt? Nei. Það var ekki að finna í ræðunum sem ég heyrði áðan í dag þegar ríkisstjórnin var að kynna sig.

Auðvitað er það einkennilegt í ljósi sögunnar að leggja fram vantraust á splunkunýja ríkisstjórn. En þetta er ekki ný ríkisstjórn. Þetta er nákvæmlega sama ríkisstjórnin og sú fyrri nema bara með annað höfuð undir nákvæmlega sama formanninum. Ég vil samt segja til að gæta allrar sanngirni að ég hef unnið töluvert mikið með Sigurði Inga Jóhannssyni í nefndum á þinginu á meðan við vorum bæði óbreyttir þingmenn og þetta er góður maður. Það er mikið af góðu fólki á Alþingi. En þetta snýst ekki um það. Þetta snýst um verkin okkar. Þetta snýst um nýja Ísland — og hvar er það? Nýja Ísland er ekki að sjá hjá þessari ríkisstjórn.

Við skulum rifja upp mál fleiri ráðherra. Við skulum rifja upp mál fyrrverandi ráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Við skulum rifja upp mál hæstv. menntamálaráðherra, fyrrverandi eða fráfarandi hæstv. forsætisráðherra, og hæstv. fjármálaráðherra. En við skulum rifja upp það sem mestu skiptir að ríkisstjórnin er búin að vera í miklu ósætti. Ríkisstjórninni hefur ekki tekist að koma sér saman um afnám verðtryggingar eins og var lofað. Henni hefur ekki tekist að koma sér saman um að klára þau frumvörp sem liggja inni á þingi um húsnæðismál. Ég mundi vilja sjá ríkisstjórnina, ef hún ætlar sér að fá að starfa í skjóli minni hlutans, koma málum í gegn. Ég vil þá fá að heyra og fá það staðfest að þau eigi að fara í gegn án þess að annar ríkisstjórnarflokkurinn bregði fæti fyrir hinn eins og allir vita að hefur verið hér í gangi inni á þingi.

Ég kalla eftir auðmýkt. Það væri mjög auðvelt fyrir okkur í minni hlutanum að koma og styðja við þau miklu verk sem þurfa að klárast á þinginu, hvort sem það er undir ykkar forsæti eða einhvers annars forsætis. En sýnið þá smá auðmýkt. Biðjið þjóðina afsökunar. Ég hef ekki fundið fyrir auðmýkt undanfarna daga. Ég hef þvert á móti fundið fyrir og fengið hótanir og vanvirðu frá þeim ráðamönnum sem hér eru. Það er ekki mjög hvetjandi.

Ég verð að segja að á meðan fólki er svo misboðið og er svo sjokkerað yfir því sem því hefur verið boðið upp á, þá getum við ekki haldið áfram að vinna hér inni eins og ekkert sé. Það er nauðsynlegt að þeir þingmenn sem ég hef heyrt kvarta undan núverandi stjórnskipan og þeim hefur sjálfum verið misboðið — ég var hér á þingi daginn sem þessir hlutir voru að koma upp á yfirborðið og sá hvernig stjórnarþingmönnum leið. Það er mjög mikilvægt að þeim þingmönnum sem hefur liðið illa yfir því sem í gangi hefur verið samþykki annaðhvort vantraustið eða finni leiðir til að við getum unnið saman.

Ég vil líka fá dagsetningu. Það er bara þannig að ég get ekki treyst einhverjum loðnum loforðum sem eru vafin inn í hótun um að hætta við að hætta ef við í minni hlutanum gerum ekki allt sem ríkisstjórnin vill. Það er bara ekki í boði. Hlustið á almenning. Biðjist afsökunar.