145. löggjafarþing — 95. fundur,  8. apr. 2016.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

692. mál
[15:26]
Horfa

Páll Valur Björnsson (Bf):

Virðulegi forseti. Fræðimenn sem rannsaka orsakir og afleiðingar spillingar og alþjóðlegar stofnanir og frjáls samtök sem berjast gegn henni, eins og Transparency International, eru á einu máli um hvað það er sem einkennir samfélög sem eru að mestu laus við spillingu og þar sem ástunduð eru góð stjórnmál og stjórnsýsla sem vinnur af heilindum í þágu almennings. Það sem einkennir stjórnmálin í þannig samfélögum er kallað „good governance“ á ensku og einkennist af vilja til að leita almennrar sáttar og málamiðlana, virkri þátttöku almennings, gagnsæi, frjálsum og óháðum fjölmiðlum, virðingu stjórnvalda fyrir skoðunum og þörfum almennings og vilja til að taka ábyrgð á gerðum sínum og meðferð valds.

Þar sem vel er að þessu staðið leggja stjórnvöld áherslu á að ná sem víðtækastri sátt um grundvallarmálin í samfélaginu. Meiri hlutinn beitir ekki minni hlutann ofríki heldur er tekið tillit til sjónarmiða allra. Leitast er við að tryggja að almenningur hafi greiðan aðgang að upplýsingum og gögnum sem hafa þýðingu til að hann geti myndað sér skoðanir á traustum grundvelli og nýtt lýðræðislegt vald sitt með upplýstum hætti. Stjórnvöld eru með öðrum orðum alveg klár á því að hlutverk þeirra er að þjóna almenningi en ekki beita almenning valdi eða stýra honum, hvað þá að beita hann blekkingum, leyna hann upplýsingum og villa um fyrir honum.

Hvers vegna er ég að rekja þetta hér? Vegna þess að þetta eru þeir mælikvarðar sem mér finnst augljóst að eigi að leggja á þá stjórnmálaflokka sem stjórnað hafa landinu undanfarin ár og vilja nú alls ekki leggja verk sín í dóm almennings. Þeir elska valdið en óttast almenning.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er að finna allmörg göfug markmið og sum þeirra mjög í þeim anda sem ég lýsti hér að framan. Þar kemur meðal annars fram að virkja eigi samtakamátt þjóðarinnar og vinna gegn því sundurlyndi og tortryggni sem einkennt hefur íslensk stjórnmál og umræðu í samfélaginu um nokkurt skeið. Samfélagið eigi að vera samvinnuverkefni. Landið eigi að vera fjölskylduvænt land þar sem börn búi við jöfn tækifæri. Stuðla eigi að því að yngstu kynslóðirnar öðlist trú á framtíð lands og þjóðar.

En hvernig hefur framkvæmdin verið? Hefur þessi ríkisstjórn virkjað samtakamátt þjóðarinnar og unnið gegn sundurlyndi og tortryggni? Hefur þessi ríkisstjórn sýnt í verki að hún líti svo á að samfélagið sé samvinnuverkefni? Hefur þetta verið ríkisstjórn sem ber hag barna fyrir brjósti og forgangsraðar í þágu barna og tryggir þeim jöfn tækifæri? Nei, svo sannarlega ekki. Þessi ríkisstjórn hefur ekki gert neitt til að virkja samtakamátt þjóðarinnar. En hún hefur gert mjög mikið til að ala á sundrungu meðal hennar og gefið henni ærin tilefni til að fyllast vantrausti og tortryggni. Hefur einhver gleymt því hvernig þessi ríkisstjórn sveik öryrkja og aldraða og eldri borgara um afturvirkar hækkanir bóta og þeim einbeitta brotavilja sem hún sýndi í því máli öllu fyrir síðustu jól, bara svo eitthvað sé nefnt?

Herra forseti. Þessi ríkisstjórn hefur deilt og drottnað. Þessi ríkisstjórn hefur ekki sýnt snefil af auðmýkt eða sáttfýsi en hefur aldrei skort valdhrokann og geðþóttann. Meiri hlutinn ræður! Ég hef þann meiri hluta sem ég þarf, sagði fjármálaráðherrann og flokksformaðurinn. Þar talaði stjórnmálamaður sem setur sjálfan sig, flokkinn sinn og sérhagsmuni skör ofar en hagsmuni heildarinnar, ofar hagsmunum almennings sem hann var þó kosinn til að þjóna.

Fögru orðin í stefnuskránni sem áður eru nefnd hafa reynst innihaldslaus fagurgali sem er eiginlega vandræðalegt að lesa núna þegar fyrir liggur hvernig til hefur tekist. Nú veit ég ekki hvort hugur hafi fylgt máli þegar ráðherrarnir settu stafina sína undir þessa fögru yfirlýsingu eða orðin í stefnuyfirlýsingunni og það skiptir eiginlega engu máli úr því sem komið er. Bláköld staðreyndin blasir við. Þetta hefur verið og er ríkisstjórn sérhagsmuna. Ef hún fær tækifæri til mun hún halda áfram að deila og drottna í þágu sérhagsmuna. Þetta hefur verið ríkisstjórn sem lætur sér það í léttu rúmi liggja að hennar eigin ráðherrar blekki almenning og fjölmiðla. Þetta hefur verið ríkisstjórn sem lætur sér í léttu rúmi liggja að ráðherrar fylgi ekki reglum samfélagsins. Þetta hefur verið ríkisstjórn sem samþykkir að ráðherrar láti eiginhagsmuni ganga framar hagsmunum þjóðarinnar. Og önnur bláköld staðreynd blasir við og hún er sú að rannsóknir sýna að þau börn sem vaxa upp í samfélögum þar sem reglur samfélagsins eru ekki virtar, spilling ríkir og blekkingar eru viðhafðar, eru líklegri til að verða sjálf óheiðarleg og temja sér sjálf blekkingar og fylgja ekki reglum samfélagsins. Er það virkilega sú framtíðarsýn sem ríkisstjórnarflokkarnir hafa fyrir hönd æsku þessa lands?

Virðulegi forseti. Góð kona sagði eitt sinn að þegar ráðamenn hætta að hlusta á hjartslátt þjóðar sinnar og sinntu ekki óskum hennar bæri að skipta þeim út. Það er því miður sú staða sem er uppi í okkar góða landi. Almenningur í landinu hefur þurft að þola miklu meira en nóg í boði þessarar ríkisstjórnar. Þessi ríkisstjórn er gersamlega rúin trausti. Það er óbærileg staða fyrir íslenskt samfélag að svo sé komið. Því styð ég þá vantrauststillögu sem hér er lögð fram og ég styð einnig kröfu almennings um kosningar strax. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)