145. löggjafarþing — 95. fundur,  8. apr. 2016.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

692. mál
[16:06]
Horfa

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (Vg):

Frú forseti. Kæru landsmenn. Botninum er náð. Á örfáum dögum hefur þjóðin glatað ímynd sinni um gjörvalla heimsbyggðina. Fyrrverandi forsætisráðherra blekkti þjóð sína þegar hann steig úr stóli ráðherra og hafði ekki einu sinni burði í sér eða geð til að ávarpa þjóðina og telur sig í rauninni ekki skulda henni afsökunarbeiðni.

Nýi forsætisráðherrann sagði í ræðustól þingsins að skattaskjólsviðskipti fyrirrennara síns væru í lagi því að það væri svo erfitt að eiga peninga á Íslandi og að einhvers staðar þyrftu þeir að vera. Og hann lagði blessun sína, ekki bara yfir leyndina heldur líka hagsmunaáreksturinn og hafði miklar athugasemdir við að fólk skyldi voga sér yfir höfuð að ræða um málið.

Sami hroki birtist okkur þegar ný kennitöluflakkandi leppríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, stigastjórnin, var mynduð í hraði og kynnt í stiganum á Alþingi þar sem fjármálaráðherra talaði niður til stjórnarandstöðunnar og til fólksins í landinu með miklu yfirlæti. Engu var breytt, ekkert nýtt, sama fólk en skipt um bás.

Hæstv. umhverfisráðherra talaði um almenning og stjórnarandstöðuna og líkti henni við óþekk börn og sagði að öllum kröfum hefði verið mætt. Ég frábið mér að fólkinu sem hér er inni og er verið að tala um sé líkt við börn. Það á miklu betra skilið.

Og nýi utanríkisráðherrann segir í sinni fyrstu ræðu: Stjórnarfarslegur stöðugleiki er kominn á eftir umrót síðustu daga.

Ja, sér er nú hver stöðugleikinn. Ætlum við að una því að ráðherrar og aflandsfólkið séu á launum hjá þjóðinni meðan þeir búa sig undir næstu kosningar? Enginn í stjórnarliðinu hefur fordæmt hegðun eða gjörðir þessa fólks. Gott fólk, horfðum við ekki örugglega öll á sama Kastljóssþáttinn?

Samkvæmt könnun sem gerð var í gær bera 65% lítið traust til forsætisráðherra og svipað til hæstv. ráðherra Bjarna Benediktssonar. Svo telja þessir menn sig bæra til að fara með málefni þjóðarinnar.

Við skulum heldur ekki horfa fram hjá því að ef það hefði ekki verið andlitið á fyrrverandi forsætisráðherra sem var í helstu fjölmiðlum heimsins hefði það verið andlit fjármálaráðherra, því að þetta er einsdæmi. Önnur lönd bregðast við með rannsóknum og við höfum haft fregnir af því að Cameron, sem var með smáaura, sé að leggja öll sín gögn á borðið og allar upplýsingar. Líklega neyðist hann til að segja af sér.

En hvað er gert hér? Á litla Íslandi sem er í miklum vanda telja ráðamenn enga ástæðu til að segja af sér og gefa lýðræðinu tækifæri. Þeir þora ekki að endurnýja umboð sitt. Við megum heldur ekki gleyma þeim málum sem hafa komið upp hjá núverandi ríkisstjórn. Tveir aðrir ráðherrar, hæstv. ráðherra Illugi Gunnarsson og fyrrverandi ráðherra Hanna Birna Kristjánsdóttir, sem fór að vísu nauðbeygð úr stólnum, hafa orðið uppvísir að óheiðarleika. Þessi ríkisstjórn er gjörspillt og þjóðin hefur sýnt að hún treystir henni ekki en þau sem fyrir henni fara virðast ekki skilja alvöru málsins, sem er vægast sagt hrikalegt.

Fyrr í morgun komu margir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hver á fætur öðrum og sögðu okkur að þau yrðu að fá að klára málin sín og báðu um aðstoð undir vantrauststillögu. Að þeirra mati virðist enginn geta leyst verkefnin sem fram undan eru nema helmingaskiptaflokkarnir. Það er náttúrulega þvæla, enginn er ómissandi, hvorki í þeim verkum sem þarf að vinna hér innan dyra né annars staðar.

Þau tala um efnahagslegan stöðugleika, húsnæðismál og verðtrygginguna. Kæra ríkisstjórn og kæru stjórnarþingmenn, þið hafið haft þrjú ár til að vinna að stefnumálum ykkar en nú þegar ljóst má vera að ríkisstjórnin er búin að vera er allt í einu svo mikilvægt að klára málin, þó að fá hafi verið lögð fram. Sum hver eru engin smámál, eins og að afnema verðtrygginguna.

Frú forseti. Þetta er til heimabrúks og verður ekki að veruleika hjá ríkisstjórninni. Þetta er tómt kjaftæði sem verið er að bera á borð fyrir þjóðina.

Fjármálaráðherra segir að aldrei hafi verið jafn bjart yfir og nú. Í hvaða heimi lifir hæstv. fjármálaráðherra? Hvar er iðrunin? Hvar er auðmýktin? Siðferði valdamesta fólksins er til umfjöllunar, ekki lagatæknileg atriði málsins.

Kæra þjóð. Er þetta fólkið sem er best til þess fallið að sjá til þess að ráðamenn verði rannsakaðir og vaðið verði á fullu í það að taka á skattaskjólsmálum af einhverri alvöru? Ég segi nei.

Hæstv. ráðherra félagsmála hefur ekki stuðning sjálfstæðismanna til að ljúka húsnæðisfrumvörpunum en það er samt það sem hvetur hana áfram að klára þau mál. Hún getur væntanlega stutt næstu ríkisstjórn til góðra verka ef hún nær að endurnýja umboð sitt hjá kjósendum.

Menntamálin eru í algjöru neyðarástandi og ráðherrann setur á stofn nýjar stofnanir en tekur ekki á vanda málaflokksins.

Heilbrigðismálin eru þjóðinni að sjálfsögðu mjög hjartfólgin og því svarar ríkisstjórnin og heilbrigðisráðherra með því að auka einkavæðingu í grunnþjónustunni, í heilsugæslunni, þrátt fyrir ítrekaðan vilja stórs hluta fólksins í landinu um að heilbrigðisþjónustan eigi að vera hluti af samneyslu okkar. Framkoman við eldri borgara og öryrkja, það er ekki hægt að halda ræðu án þess að minnast á þau afrek ríkisstjórnarinnar.

Frú forseti. Rannsóknarblaðamennska og fjölmiðlar eru mikilvægir og við þurfum að styrkja Ríkisútvarpið enn frekar í stað þess að reyna að brjóta stofnunina niður, eins og núverandi ríkisstjórnarflokkar hafa gert og þeir hafa ekki lokið störfum hvað það varðar. Við þurfum að spyrja okkur sem þjóð að því hvernig land og hvers konar innviði við viljum. Viljum við að hér sé við völd ríkisstjórn ríka fólksins sem hafði það í forgangi sínum að lækka veiðigjöldin og framlengja ekki auðlegðarskattinn, sem telur einkavæðingu í heilbrigðiskerfinu lausnina í stað aukinnar samneyslu? Ekki ég.

Vill þjóðin ríkisstjórn sem kvittar upp á hegðun eins og kom fram hjá fyrrverandi forsætisráðherra? Vill þjóðin ríkisstjórn sem kvittar upp á að sá fyrrverandi ráðherra sitji áfram sem þingmaður? Vill þjóðin ríkisstjórn sem kvittar upp á aflandsviðskipti hjá þeim ríku?

Lýðræðið þarf að endurreisa og traust á stjórnmálunum og við þurfum öll að endurnýja umboð okkar hjá kjósendum. Það á að vera í þeirra höndum við þessar aðstæður að taka ákvörðun, ekki 38 þingmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Við þurfum kosningar strax.

Kæru landsmenn, sýnið ríkisstjórninni að þið sættið ykkur ekki við það siðleysi sem (Forseti hringir.) forustufólk ríkisstjórnarinnar býður ykkur og okkur upp á. Látið í ykkur heyra, látið ekki berja ykkur til hlýðni. Orðspor og trúverðugleiki þjóðarinnar er í húfi.