145. löggjafarþing — 95. fundur,  8. apr. 2016.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

692. mál
[17:35]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Tortóluríkisstjórnin situr hér enn. Skattaskjólaráðherrar sitja hér enn. Það er óásættanlegt fyrir Ísland. Þessi ríkisstjórn er búin að vera. Þessi ríkisstjórn er rúin trausti. Það er tímabært að stjórnarflokkarnir horfist í augu við þann veruleika. Ég segi já.