145. löggjafarþing — 95. fundur,  8. apr. 2016.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

692. mál
[17:55]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Sá sem stofnar leynireikning í skattaskjóli gerir það í ákveðnum tilgangi, hann gerir það til að fela og blekkja og til þess að komast hjá því að leggja sitt til samfélagsins. Íslenski hæstv. forsætisráðherrann segist ekki alfarið á móti notkun skattaskjóla. Íslenski hæstv. fjármálaráðherrann hefur nýtt sér skattaskjól. Hann er yfirmaður skattamála. Íslensk stjórnvöld skortir traust og tiltrú. Við ávinnum okkur ekki traust með þessari ríkisstjórn. Hún er auk þess hlægileg í augum annarra þjóða. Hún þarf að fara frá. Ég segi já.