145. löggjafarþing — 95. fundur,  8. apr. 2016.

vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.

692. mál
[17:57]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S):

Hæstv. forseti. Ég hef talað fyrir því í bæði mínum þingflokki og á opinberum vettvangi að kjósa. Ég tel að Sjálfstæðisflokkurinn sem og þjóðin öll hafi hag af því að fara í kosningar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur hag af því vegna þess að þar getum við lagt verk okkar, þeirrar ríkisstjórnar sem hefur setið undanfarin ár, í dóm kjósenda, sem og allir aðrir flokkar sem hér sitja. Það er hollt fyrir okkur öll. Það er hollt fyrir lýðræðið og það er gott fyrir þjóðfélagið í heild. Ég verð að segja að þegar það verða mikil átök í pólitíkinni, eins og núna vegna þeirra atburða áttu sér stað í vikunni, líka vegna þess sem gerðist þegar þjóðin felldi Icesave-lögin á sínum tíma, þá á þingið að skoða hug sinn og hugsa sig um: Er ekki rétt að kjósa? Við erum ekki hrædd við kosningar. Þess vegna styð ég það að við förum í kosningar og segi já. [Lófatak í þingsal.]