vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar.
Herra forseti. Þótt ekki væri nema til að hafa það á hreinu hvenær kosningar eiga að verða á Íslandi væri viturlegt að samþykkja þessa tillögu. Eins og hefur heyrst í ræðum og atkvæðaskýringum virðist eiga að gera eitthvert einkennilegt valdatafl úr þeirri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar að hún hyggist stytta þetta kjörtímabil um eitt þing. Það er sett í einkennilegt samhengi þar sem rætt er um að það verði svo allt vegið og metið eftir því hvaða samkomulag náist. Herra forseti. Þetta er auðvitað ekki boðlegur rökstuðningur. Þótt ekki væri nema bara út af þeirri orðræðu þá segi ég já við kosningum í vor.