aðgerðir gegn lágskattaríkjum.
Virðulegi forseti. Varðandi aflandsfélögin þá teljum við mjög mikilvægt að Ísland taki forustu meðal jafningja og sýni frumkvæði. Orðspor landsins beið hnekki og í ljósi þess hversu margir einstaklingar og fyrirtæki hér á landi voru í þessum gögnum þurfum við að gera sérstakt átak til að bæta ímynd okkar út á við. Það er þó þannig, og kom fram í The Economist í dag, að það er talið að þessi leki sýni milli 5 og 10% af umfangi þessa vanda í heiminum þannig að það er mjög umtalsvert verkefni alþjóðasamfélagsins að takast á við þennan vanda.
Varðandi kosningar get ég vel ítrekað það sem ég sagði í morgun — ég þakka fyrir þann ágæta fund, ég upplifði það sem við höfum verið að ræða um áður í þinginu að það er tortryggni, það er vandasamt að feta þá braut að treysta hvert öðru og tala saman. Ég átti fínan fund með formönnum og forsvarsmönnum stjórnarandstöðunnar í morgun þar sem við fórum yfir það að við þurfum að halda (Forseti hringir.) þessu samtali áfram. Við þurfum að fara yfir þau þingmál sem sannarlega liggja fyrir í þinginu og við þurfum að ákveða kjördaginn í haust eins og við forsvarsmenn þessarar ríkisstjórnar höfum boðað.