145. löggjafarþing — 96. fundur,  12. apr. 2016.

þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.

327. mál
[19:06]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Í 10. lið hinnar upphaflegu tillögu er getið um að partur af tillögunni, ef samþykkt verður, sé að setja á laggir þjóðaröryggisráð. Eins og segir þar þarf að gera það með sérstökum lögum.

Ég vildi spyrja hæstv. utanríkisráðherra í fyrsta lagi hvort að hæstv. ríkisstjórnin hyggist, þá væntanlega að eigin frumkvæði, leggja fram slík lög á yfirstandandi þingi.

Ég er þeirrar skoðunar að það sé rétt af ríkisstjórninni að minnsta kosti að sýna slíkt frumvarp. Raunar er ég þeirrar skoðunar að það eigi að vera kleift að fá það samþykkt hér á hinu háa Alþingi.

Að þessu máli hafa unnið þrír utanríkisráðherrar eða komið að því. Það hefur verið unnið í tíð þriggja ríkisstjórna. Það er til marks um það hvernig á að vinna flókin og vandasöm mál sem varða grundvallaratriði fyrir þjóðina og eiga að vara lengi. Ég tel að það hvernig þetta mál hefur sannarlega verið brotið til mergjar í umræðum í þinginu og af þeirri nefnd sem hv. þm. Valgerður Bjarnadóttir veitti forstöðu sé mjög til fyrirmyndar um það hvernig á að taka á verkefnum af þessu tagi.

Mér finnst hins vegar að nota eigi samstöðuna hér mitt í samstöðuleysi samfélagsins og það eigi að nota skriðinn sem er á málinu til þess að fleyta því alla leið í lokahöfn.

Það er þess vegna sem ég spyr hæstv. ráðherra: Hyggst hún leggja fram slíkt frumvarp?