145. löggjafarþing — 97. fundur,  13. apr. 2016.

nauðsyn bættra fjarskiptatenginga og hagræn áhrif gagnavera.

690. mál
[16:05]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að fagna þessu máli og þakka hv. flutningsmanni fyrir að leggja það fram. Margir á Íslandi hafa talið að við stöndum sérstaklega vel þegar kemur að gagnaverum sem er tilfellið þegar kemur að rafmagni. Hins vegar hefur verið til vandræða að hér eru nettengingar við umheiminn ekki eins og þær þurfa að vera til að Ísland verði sá aðlaðandi kostur sem við viljum öll að það sé.

Ég fagna aftur þessu máli og býst fastlega við að í kjölfarið komi fram gögn og leiðir fyrir okkur til að gera glæsilega hluti í þessum málaflokki.