þjóðaröryggisstefna fyrir Ísland.
Herra forseti. Ég tek undir fögnuð annarra hv. þingmanna og hæstv. ráðherra yfir þessari vinnu og þakklæti til allra þeirra sem hafa komið að henni á löngu tímabili og mörgum kjörtímabilum. Þetta er mjög gott dæmi um hvernig getur tekist til þegar allir eru kallaðir að borðinu og vinna sameiginlega að verkefni.
Það er mikilvægt fyrir Ísland að eiga þjóðaröryggisstefnu. Við erum um margt sér á parti, við rekum ekki her sem þýðir að stór hluti af okkar þjóðaröryggi er í höndum þriðja geirans, almannasamtaka á borð við björgunarsveitir. Það kemur fram í tillögunni að stefna stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum verði hluti af þjóðaröryggisstefnu. Það er mikilvægt og það er ástæða til að fagna þessu og þeirri réttarbót sem mun af leiða.