145. löggjafarþing — 97. fundur,  13. apr. 2016.

skattar og gjöld.

667. mál
[16:54]
Horfa

Páll Jóhann Pálsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla nú ekki að fara að gera lítið úr skattalækkunum sem hæstv. ráðherra hefur staðið fyrir og ég hef stutt eindregið, er alveg með honum í því. En mig langaði bara til að benda á þetta af því að ég veit að það situr í sjómönnum að það er ekki lengra síðan en á síðasta kjörtímabili, hvort það var ekki þá, að sjómannaafslátturinn var tekinn af þeim. Þetta er svolítið sálrænt, þetta voru ekki góð skilaboð og fóru illa í menn sem og sú staðreynd að aðrir sambærilegir hópar fá ákveðna ívilnun vegna dagpeninga meðan þeir fá ekki neina ívilnun á sambærilegar greiðslur, sem eru fæðispeningar.

En ég hvet nefndarmenn til að skoða þessi mál. Ég held að það séu flestir sammála um að þetta bitnar á sjómönnum, að geta ekki samskattað, þess vegna var mjög ánægjulegt að samþykkja síðastliðið haust að til stæði að gefa þessum aðilum kost á því að nýta skattafslátt hjá maka. Þannig að ég skora á hv. nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd að taka þetta til athugunar og treysti því að ráðherra sýni þeim skilning.