mál forustumanna stjórnarflokkanna í Panama-skjölunum.
Virðulegi forseti. Það var á síðasta kjörtímabili sem CFC-reglurnar voru leiddar í lög með nokkuð breiðum stuðningi á þingi ef ég man rétt. Það var nokkuð almenn sátt um það. Og hvað segir sú löggjöf? Segir hún ekki að það sé allt eðlilegt við það að vera með starfrækslu og tekjur á lágskattasvæðum svo lengi sem menn gefa það upp og borga af því þá skatta sem kveðið er á um í lögunum? Er það ekki svo? Má ekki segja að CFC-löggjöfin sé eins konar viðurkenning á því að alþjóðleg viðskipti geti leitt til þess að starfsemi fari fram á lágskattasvæðum, Íslendingar áskilji sér bara það að geta með vissum hætti tekið til baka skattalega ávinninginn upp að vissu marki, þó einungis ef lágskattasvæðin eru með skatta sem nema meira en 2/3 þess sem skattarnir væru á Íslandi? Ég sé ekki betur en að hv. þingmaður sé hér, með því að vekja athygli á CFC-reglunum, (Forseti hringir.) að leggja alveg sérstaka blessun yfir það að menn eigi í slíkum viðskiptum, séu þar með skattskylda starfsemi svo lengi (Gripið fram í.) sem greiddir séu af því skattar og allt gefið upp gagnvart skattyfirvöldum. Þetta er auðvitað grundvallaratriði.