145. löggjafarþing — 98. fundur,  14. apr. 2016.

tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

618. mál
[11:29]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að halda langan pistil um þetta mál. Ég tel það ágætt. Ég hef löngum verið þeirrar skoðunar að íslensk kvikmyndagerð og íslensk menning sérstaklega þurfi sérstakan ríkisstuðning af þeirri einföldu ástæðu að íslenska tungan er ekki samkeppnishæf sem menningarlegt fyrirbæri á alþjóðavettvangi. Það er að mínu mati í raun og veru það einfalt. Þess vegna þarf ríkisstuðning við íslenska menningu sem væri ekki nauðsynlegur ef við byggjum í stærra samfélagi þar sem okkar tungumál væri samkeppnishæft sem einhvers konar tungumál sem væri ætlað til tjáningar milli annarra en Íslendinga einna.

Við höldum að mínu mati í íslensku tunguna af nokkrum praktískum ástæðum, ekki einungis rómantískum þótt mér þyki það í sjálfu sér alveg nægja, a.m.k. fyrir mig persónulega. Ég veit ekki með aðra hvað það varðar.

Ég þekki það af því að hafa búið í Kanada að þar er fólk sem er kallað First Nations á ensku. Íslendingar kalla það fólk indíána. Ég veit ekki hvort það þykir eitthvað ósæmilegt. En fólk af þeim ættum kann ekki móðurmálið sitt. Það kann ekki málið sem ömmur þess og afar töluðu. Það þýðir að þetta fólk kann ekki brandarana úr sinni menningu eða sögurnar nema þýddar yfir á ensku eða frönsku eða hvaða mál annað sem fólk talar.

Ég tel mjög mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að halda í íslenska tungu til að við séum enn læs á okkar eigin sögu, okkar eigin bakgrunn. Það álít ég mjög praktískt atriði. Til þess að íslenskan lifi af 21. öldina og þá tækniframþróun sem er óhjákvæmileg, sem betur fer, verðum við að styðja hana sérstaklega. Það þýðir að við þurfum að veita ívilnanir og gera hluti hér sem brjóta kannski í bága við þau efnahagsmódel sem margir mundu að öðrum kosti vilja.

Í meginatriðum af þeim ástæðum styð ég þetta mál og önnur sambærileg. Þótt hér sé ekki endilega um að ræða einungis kvikmyndir sem eru gerðar á íslensku máli held ég hins vegar að það sé mjög mikilvægt hlutverk ríkisins að tryggja að Ísland, íslensk menning, íslensk náttúra og íslensk tunga komi fyrir sjónir annars staðar úti í heimi vegna þess að lykilforsenda þess að mínu mati að íslenskan lifi af er hreinlega áhugi útlendinga, áhugi fólks á íslenskri menningu. Mér þykir mjög mikilvægt að erlent fólk hafi jafnvel flutt hingað, eða reyni að flytja hingað öllu heldur, til að læra íslensku og til að kynnast Íslandi — en til þess þarf Ísland að sjást. Ef það á að fara alfarið eftir markaðslögmálunum þegar kemur að nytsemi íslenskrar tungu erlendis held ég að það markmið muni ekki nást. Ég óttast það í það minnsta. Því þykir mér svona mál mun réttlætanlegra en ella þegar kemur að niðurgreiðslu á menningu almennt.

Ég skil mætavel það sjónarmið að ríkið eigi ekki að niðurgreiða menningu. Ég er hins vegar ekki algjörlega sammála því, sérstaklega af fyrrgreindum ástæðum. Að öðru leyti þykir mér skrýtið að ríkið geri upp á milli tiltekinna listgreina. Hver ákvað að ein tónlist væri sérstaklega fáguð en önnur ekki? Af hverju er það hlutverk ríkisins? Mér finnst það góð spurning og mikilvæg, og mikilvægt að svara henni. Ég tel svarið vera til staðar þegar kemur að íslenskri menningu almennt.

Að sama skapi gæti ég tekið listform sem er kannski ekki alveg jafn mikið viðurkennt í öllum stéttum samfélagsins, t.d. rapptónlist sem ég er ekki mikið fyrir sjálfur. Hún er engu að síður mikilvæg til að tungan okkar lifi áfram í einhverju nýju umhverfi, að það sé fiktað með hana, hún prófuð áfram og reynt að máta hana inn í tiltekið listform.

Ég hygg að það sé nægur áhugi meðal íslenskrar þjóðar sjálfrar til að standa undir slíkri listsköpun enda er hún í grunninn ekki dýr í framleiðslu þegar kemur að því að veita til hennar fjármagn og kannski bara við upptöku, útgáfu og eitthvað því um líkt. Sá kostnaður fer að vísu stöðugt lækkandi eins og reyndar í flestum hugverkagreinum.

Þegar kemur að kvikmyndum hins vegar er um að ræða afskaplega dýr verkefni. Það þarf mikla fjárfestingu. Það þarf mikla peninga til að hefja verkið og klára það. Margt fólk þarf að koma saman á sama tíma og gera einhverja ákveðna skipulagða hluti. Það þarf að vera fólk í vinnu í meginatriðum á meðan mörg önnur menning krefst ekki þessa sérstaka fjárstuðnings til að ýta undir starfsemina.

Mörg ljóð eru samin af áhugafólki, einfaldlega vegna þess að mannskepnan hefur þörf til að tjá sig með misjöfnum hætti. Það er fallegt og það er æðislegt og mér finnst að við eigum að halda áfram þeirri vegferð að stefna að því að sem mest gerist á íslensku þannig að við getum haldið í tungumál okkar út þessa öld þrátt fyrir þær áskoranir sem tækniframþróanir aldarinnar hafa nú þegar fleygt fyrir okkur og munu halda áfram.

Ég hef ekki farið yfir stærðfræðina í þessu öllu saman en mér sýnist einnig efnahagsleg rök fyrir því að gera þetta, í það minnsta eitthvað sem gallharðir hægri menn gætu kallað afsakanir. Ég þori ekki að fara með það en mér þykir heppilegt að slík rök komi einnig til skoðunar og að fólk rökræði þau. Þótt hinn frjálsi markaður sé hið ágætasta tæki til að leysa ýmis vandamál er hann ekki hið ágætasta tæki til að leysa öll vandamál. Eitt af þeim vandamálum sem hinn frjálsi markaður mun ekki leysa er það að Ísland haldi í íslenska tungu út þessa öld og þótt fleiri vandamál væru tekin fyrir ef út í það er farið.

Mér þykir mikilvægt að halda þessum sjónarmiðum til haga vegna þess að ef þetta mál og önnur sambærileg snúast einvörðungu um hagfræðilegar forsendur finnst mér við svolítið vera að gleyma aðalatriðinu. Aðalatriðið hlýtur að vera að styrkja framleiðslu í þessum menningarlega geira og þótt víðar væri leitað.

Að því sögðu ítreka ég bara að ég skil mætavel gagnrýnina á hendur þessu sem og þá gagnrýni sem stundum kemur fram í þessum málum en er hins vegar ekki sammála þeim af þeim ástæðum sem ég hef viðrað.

Tíðarandans vegna finnst mér alveg þess virði að nefna að báðir foreldrar mínir hafa unnið við kvikmyndagerð í fortíðinni og því gæti vel gerst að þau geri það aftur. Ég vil halda því til haga í ljósi nýliðinna atburða. Ég tel þetta ekki endilega þess eðlis að það hafi mikil áhrif á hagsmunatengsl mín en til að reyna að peppa upp þá menningu, svo við slettum aðeins, fannst mér rétt að nefna það.

Mér öðrum orðum, mér þykir þetta gott mál og kem til með að styðja það að óbreyttu en fagna því að hér séu viðruð fleiri sjónarmið, hvort sem þau eru menningarleg eða hagfræðileg.