145. löggjafarþing — 98. fundur,  14. apr. 2016.

tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi.

618. mál
[12:05]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að heyra aðeins meira um það frá hv. þingmanni af hverju hún telur skattaívilnun betri leið en þessa. Hv. þingmaður talar um að það þurfi að vera gegnsæi í þessu. Ókei, gott og vel, að þetta raski samkeppnisstöðu.

Ég átta mig á því að við hv. þingmaður erum ekki sammála um túlkun 1. gr. laganna sem hér er verið að breyta, en það kemur alveg skýrt fram að markmið laganna er að stuðla að eflingu innlendrar menningar og kynningu á sögu landsins og náttúru. Ég spyr hvort hv. þingmaður mundi ekki krefjast sama gegnsæis og hvort hv. þingmaður mundi ekki einnig kvarta undan raskaðri samkeppnisstöðu ef hér væri um að ræða skattaívilnun sem varðaði þennan bransa sérstaklega ef það væri ekki einfaldlega skattalækkun þvert á allan iðnað eins og ég veit að hv. þingmaður er hlynntur.

Að því gefnu að styðja þurfi við menningarstarfsemi yfir höfuð, hvaða kosti telur hv. þingmaður að skattaívilnun hafi umfram þessa aðferð, þessa endurgreiðslu? Væri hv. þingmaður hlynntari slíkri aðferð ef markmiðið væri það sama og útgjöld ríkissjóðs eða ef það hefði sömu áhrif á ríkissjóð, heildarjöfnuð það er að segja?

Ég vil líka benda hv. þingmanni á það í leiðinni að það er munur á kvikmyndagerð og tónlistargerð — ég get sagt það vegna þess að ég er sonur kvikmyndagerðarmanns og hljóðmanns og er tónlistarmaður í þokkabót, áhugamaður sjálfur. Það að búa til kvikmynd er miklu stærra verkefni. Það þarf miklu meiri fjárfestingu í það en að búa til tónlist, hvort sem það er eitt lag eða plata. Það er því gríðarlegur stærðarmunur þar á. Það þarf ekki eins mikla aðstoð til þess að gefa út plötu og þarf fyrir kvikmyndaiðnaðinn.