145. löggjafarþing — 98. fundur,  14. apr. 2016.

niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

648. mál
[14:59]
Horfa

Kristján L. Möller (Sf):

Hæstv. forseti. Ég þarf ekki langan tíma til að ræða þetta frumvarp frá atvinnuveganefnd sem er flutt af formanni nefndarinnar. Ég á sæti í nefndinni þannig að ég er einn af flutningsmönnum frumvarpsins. Ég fagna því enn á ný að nefndin taki það upp hjá sér að flytja frumvarpið. Það segi ég undir þeim formerkjum sem ég hef áður nefnt í ræðustól, að mér finnst að frumkvæði nefnda megi vera meira eins og hér kemur fram. Með öðrum orðum, það þarf ekki allt að koma frá ráðherrum. Ég minni bara á að atvinnuveganefnd var á síðasta kjörtímabili með tillögu um að lengja tímabilið upp í átta ár, ef ég man rétt, en nefndin gerði breytingartillögu og fór upp í 12 ár. Mér fannst það mjög gott, fagnaði því mjög og var einn af flutningsmönnum þess máls.

Hérna er verið að lengja það í 16 ár og ég hika ekki við að halda því fram að það gæti orðið til þess að við færum í fleiri hitaveituframkvæmdir á svæðum sem við höfum hingað til haldið að væru köld sem gerir það þá að verkum að hægt verður að fara í þær hitaveituframkvæmdir sem eru „ekki eins hagkvæmar“ og allar þær sem eru búnar. Þetta verður mikilvægur styrkur í því og þá er sama hvort ég nefni Kjalarnes, Höfn eða aðra staði. Það má taka dæmi af Skagaströnd og hitaveitunni þar sem fór í gang í framhaldi af breytingu á lögunum á síðasta kjörtímabili og er í gangi ef ég veit rétt.

Þess vegna þarf ekki að orðlengja um þetta. Öll atvinnuveganefnd flytur málið og ég er viss um að þetta er allt saman til góðs og verður til þess að við getum vonandi fjölgað hitaveitum. Tækninni við boranir hefur fleygt fram. Menn hafa meiri þekkingu og getu til þess að finna æðar, samanber það sem gert hefur verið á nokkrum svæðum sem við töldum köld. Bortækninni hefur sem sagt fleygt fram og þá er það ríkisvaldsins að koma með þennan styrk, sem sagt að lengja tímabilið úr 12 árum í 16 ár.

Þetta er hið besta mál og vonandi fær það fljóta framgöngu á Alþingi, virðulegur forseti.