framlagning fjármálaáætlunar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja máls á þessu og tek undir hvert orð um mikilvægi þess að við höldum okkur við allan anda og markmið laganna nýsamþykktu um opinber fjármál, þar með talið að byggja umræðu um þróun opinberra fjármála á ríkisfjármálaáætluninni. Síðar í dag er ætlunin að skrifa undir samkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um opinberu fjármálin, þ.e. um fjármálastefnuna. Það er þá í fyrsta skipti sem gengið er frá samkomulagi við sveitarfélögin um grundvöll fjármálastefnunnar fram á veginn. Það er mikið fagnaðarefni. Það er miður að það hafi tekið lengri tíma en til stóð að ljúka gerð áætlunarinnar en lengi framan af stefndi í að okkur tækist að ljúka vinnunni fyrir páska. Mér sýnist að það sé nokkuð ljóst að við munum samþykkja hvort tveggja, þ.e. fjármálastefnuna og fjármálaáætlunina, í ríkisstjórn í þessari viku og í framhaldinu rati málið hingað inn til þingsins. Um er að ræða þó nokkuð viðamikil skjöl, sérstaklega fjármálaáætlunin, á annað hundrað blaðsíður um stefnur í ólíkum málaflokkum. Ég vonast til þess þegar skjalið kemur fram að okkur takist í fyrsta skipti sem þetta gerist að taka málið til góðrar umræðu og dýpka umræðuna um hvernig útlit er í opinberum fjármálum, hvað ríkið leggur af mörkum til að viðhalda stöðugleika og hvað við getum gert til að ná betri árangri fyrir landsmenn á hinum ólíku sviðum. Þetta eru breiðu línurnar. Síðan er nánari útfærsla væntanleg í fjárlögum hvers árs.