framlagning fjármálaáætlunar.
Herra forseti. Ég tel einmitt að þetta sé eitt af vandamálum stjórnmálanna í dag, að menn kalli það skrípaleik að sinna lögboðnu hlutverki eins og því að undirbúa fjárlagagerð fyrir næsta ár. Það er lögboðin skylda stjórnvalda að vinna áfram í öllum ráðuneytum að því að undirbúa fjárlagatillögur næsta árs. Að því gefnu að lögum verði ekki breytt á þing að koma hér saman í september og það á að vera fyrsta málið að leggja fjárlagafrumvarp fram. Það má vera að einhverjum þyki það betri vinnubrögð að núverandi stjórnarflokkar leggi niður verk sín og snúi sér að einhverju öðru, sinni ekki fjárlagagerðinni eða nokkurri áætlanagerð yfir höfuð. Ég er algerlega ósammála því. Það sem eru vönduð vinnubrögð, það sem mundi auka traust á því sem við erum að gera hér til þess að halda uppi stjórnfestu, stöðugleika og einhverjum árangri í verklagi í allri stjórnsýslu, (Forseti hringir.) er að halda áfram að sinna okkar lögboðnu verkefnum, burt séð frá því hvort verið er að endurnýja umboð þingsins.
Það getur vel verið að ný ríkisstjórn breyti fjárlagafrumvarpinu. En hver veit, kannski kemur ríkisstjórn sem er sammála þeirri stefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi og leggur frumvarpið fram í næstum óbreyttri mynd.