145. löggjafarþing — 101. fundur,  19. apr. 2016.

svör við fyrirspurnum.

[14:49]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Ég vil þakka forseta fyrir þau orð sem hann fór með nú síðast úr ræðustóli.

Mig langar að gera eins og hv. þm. Brynhildur Pétursdóttir og kvarta yfir drætti á fyrirspurnum. Ég lagði inn fyrirspurn, eða henni var dreift hér, 17. febrúar til hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra um bónusgreiðslur Íslandsbanka meðal annars og svör hafa ekki borist. Það var 17. febrúar.

Það er ekki flókið, held ég, að svara slíkum tölulegum upplýsingum sem ráðuneytið ætti að hafa aðgang að. Ég óska eftir því að fá svör sem fyrst.


Tengd mál