145. löggjafarþing — 101. fundur,  19. apr. 2016.

fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.

638. mál
[16:37]
Horfa

Haraldur Einarsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir stórar en mjög þarfar spurningar. Ég hefði helst viljað fá lengri tíma til að fá að svara þeim því að þær eru mikilvægar. Einbreiðar brýr hafa verið sérstakt áhugamál hjá mér og ég skal viðurkenna að það eru ákveðin vonbrigði að ekki skuli meira vera sett í að útrýma þeim eða fækka þeim. Ég ætla þó ekki að gera lítið úr því að setja eigi peninga í að breikka Skeiðarárbrú.

Ég er hér með tölur frá Vegagerðinni um að 39 einbreiðar brýr séu á hringveginum. Ég nefni þetta af því að á hringveginum er 90 km hámarkshraði og ég held að þetta sé ein mesta umferðarvá hringvegarins, þessar einbreiðu brýr. Ég hvet Vegagerðina til þess að setja að minnsta kosti upp tilmælaskilti eins og eru í Kömbunum, þar sem tilgreindur væri æskilegur hámarkshraði; 30, 50, 70. Það skilja það allir á öllum tungumálum þannig að það vita allir að hætta er á ferð. Ég segi þrjú skilti af því að fólk er að keyra á Íslandi í öllum veðrum og gæti misst af einu. Það skilja allir þessi skilti. Sá sem missir af 70 en sér 30 og 50 veit að það er eitthvað fram undan og að hann ætti að hægja á sér.

Hvað varðar umhverfismál og umhverfisspor í svona áætlun þá tek ég undir það að það væri að sjálfsögðu betra ef slíkar upplýsingar lægju með. Ég mun fagna öllum þeim hugmyndum og þeim auknu framlögum sem munu auka hlut gangandi og hjólandi í þessari áætlun sem og því að við ætlum að reyna að vinna að hlut rafbílanna.