fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.
Hæstv. forseti. Við ræðum hér loksins fram komna samgönguáætlun. Hér eru nokkur atriði sem ég vil vekja máls á, náttúrlega í von um breytingu til hins betra síðar meir.
Fyrst aðeins um hafnir og hafnarframkvæmdir. Nokkrar hafnir eru staðsettar þannig hringinn í kringum landið að jökulár renna til sjávar þar sem þær eru. Besta dæmið um þetta er Landeyjahöfn. Það er óumdeilt að þaðan þarf að dæla umtalsvert af sandi. Önnur er síðan höfnin á Höfn, en hún er inni í þessari áætlun. Svo er það höfnin á Kópaskeri sem ég vil gera aðeins að umtalsefni. Þar er ekki viðurkenndur sá vandi, sem er engu að síður augljós, að í Öxarfjörð rennur mikill framburður með Jökulsá á Fjöllum. Það er sannarlega eitthvað sem þarf að skoða betur og ríkið verður að taka þátt í því, því að ég held að við séum sammála því að sveitarfélög geta ein og sér ekki staðið undir þeim kostnaði sem fellur til við að dýpka hafnir. Ég leyfi mér þá að spyrja hvort Landeyjahöfn væri ekki lokuð árið um kring ef sveitarfélagið Rangárþing eystra þyrfti sjálft að standa straum af kostnaði. Þarna eru náttúrlega einhverjir prósentureikningar og ég held að það sé rétt hjá mér, það verður þá leiðrétt, að hlutföllin í því séu ýmist 40, 60 eða 85. En ég vildi vekja máls á því að í höfninni á Kópaskeri er gríðarlegur framburður fram í Öxarfjörð með Jökulsá á Fjöllum.
Af því að ég er staddur á þessu svæði þá vil ég gera Dettifossveg að umtalsefni, demantshringinn svokallaða. Það eru bara 0 kr. í hann á næsta ári. Það getur ekki verið ásættanlegt að það séu 0 kr., ekki einu sinni plástur eins og verið hefur. Þetta hefur verið þannig síðustu ár að menn hafa verið að plástra sig áfram, en nú ber svo við að það fara 0 kr. í þetta og enginn nýr vegur frá Vesturdal upp að Dettifossi. Þannig að einstaklingur, ferðamaður, hver svo sem hann er, sem ætlar að fara frá Dettifossi eftir sæmilegum vegi niður í þjóðgarð í Ásbyrgi, þarf að keyra upp á þjóðveg 1, niður í Mývatnssveit, niður til Húsavíkur, út fyrir Tjörnes og út í Öxarfjörð aftur. Þetta er að sjálfsögðu ekki í lagi. Þetta er verkefni sem við eigum að klára. Það er óásættanlegt að þeir peningar sem áttu að fara í Dettifossveg hafi verið teknir í eitthvað annað og ekki settir þangað aftur.
Þá ætla ég að fara aðeins ofar, inn í landið. Á sínum tíma var settur peningur í brú við Grímsstaði yfir Jökulsá á Fjöllum. Ég veit ekki betur en að nokkur sátt hafi verið um þá framkvæmd. Brúin yfir Jökulsá á Fjöllum, en þar er nú einbreið brú, var inni á áætlun að ég best veit en er nú hvergi að sjá. Nú er engin ný brú yfir þjóðveg 1 á þessum stað. Það getur ekki verið ásættanlegt.
Nú erum við komin frá Dettifossi, erum búin að keyra í gegnum Mývatnssveit og við ætlum að keyra niður til Húsavíkur. Þá ætla ég að keyra veg sem er vægast sagt mjög slæmur, svokallaður Kísilvegur, sem var á sínum tíma inni á áætlun en af einhverri ástæðu, ég veit ekkert hvort það var vegna pólitíkur eða embættismanna eða út af einhverju öðru, hvarf sá vegur hreinlega út af áætlun sem er heldur ekki ásættanlegt. Hann þyrfti sannarlega að komast inn í samgönguáætlun.
Ef ég ætla að staldra við og ætla jafnvel að renna til Akureyrar í leiðinni og keyra svo til Húsavíkur þá þarf ég að fara yfir enn eina einbreiðu brúna sem er Skjálfandafljótsbrú, neðsta, sem er byggð árið 1935. Hún er byggð fyrir seinni heimsstyrjöld. Hún er í áætluninni á öðru eða þriðja tímabili, ég bið ráðherra um að leiðrétta mig ef svo er ekki, en þetta er framkvæmd sem þyrfti sannarlega að klára.
Svo langar mig að nefna Melrakkasléttu. Á sínum tíma þegar menn fóru í veginn yfir Hólaheiði og Hófaskarðið og aflögðu veginn um Melrakkasléttu, þann hræðilega veg, gerðist það að umferð um hann jókst, þ.e. ferðamönnum fór að fjölga mjög. Mér skilst að það hafi meira að segja orðið aukning í viðgerðum bíla þarna á svæðinu vegna þess að þessi vegur er vægast sagt ónýtur. Ráðherrann nefndi áðan í ræðu sinni að fara einhverjar einfaldari leiðir og ég held að ef menn vilja fara í þennan veg væri mjög einföld leið að vera ekkert endilega að moka upp allan veginn og finna nýtt vegstæði, heldur ættu menn að nota bara þennan veg því að nú er eiginlega allt lag úr veginum farið og malbika beint ofan á veginn. Ég held að hann sé fullfær og burðugur til þess. Þetta er nokkuð einföld útfærsla á þessu.
Yfir í flugið. Það vekur sérstaka athygli að í samgönguáætlun er Húsavíkurflugvöllur ýmist inni í grunnnetinu eða ekki inni í grunnnetinu. Það er bæði fjallað um hann sem flugvöll utan grunnnetsins og í grunnnetinu. Ég vil fá það á hreint að hann sé inni í grunnnetinu. Hann á ekki að vera utan þess og ég bið ráðherra að leiðrétta mig ef svo er ekki.
Þegar flett er í gegnum þessa tillögu vekur náttúrlega furðu að minnst fé er veitt í, ég verð að segja þetta, Norðausturkjördæmi, það er bara þannig. Það er svolítið sérstakt og vekur eiginlega svolitla furðu að áberandi minnst fé sé veitt til þess landsvæðis, hins týnda landsvæðis, Kópaskers og Raufarhafnar — menn muna aðeins eftir Þórshöfn, svo muna nokkrir eftir Bakkafirði. Þetta er svæði sem við þurfum að hlúa betur að. Þetta er hið gleymda norðausturhorn. En þarna eru sannarlega brothættar byggðir eins og Kópasker og Raufarhöfn.
Ég held að ég láti þessu lokið í bili og vona að ráðherra svari eða leiðrétti mig hafi ég farið með rangt mál.