145. löggjafarþing — 101. fundur,  19. apr. 2016.

fjögurra ára samgönguáætlun 2015--2018.

638. mál
[17:15]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Svandísi Svavarsdóttur andsvarið. Eins og ég kom inn á hefði ég viljað sjá meira fjármagn í þessa samgönguáætlun. Mér finnst samt mjög margt þarna mikilvægt. Ég er tilbúin að styðja þessa áætlun þó að ég vilji að sjálfsögðu fara fram á að hv. umhverfis- og samgöngunefnd fari vel yfir hana og skoði hvort einhverjir möguleikar séu til breytinga.

Mér finnst, eins og ég kom inn á í upphafi míns máls, afskaplega mikilvægt að samgönguáætlun sé afgreidd og að hún liggi fyrir. Það er hluti af þeirri framtíðarsýn sem við þurfum að hafa, hvort sem við störfum á hv. Alþingi, í stjórnsýslunni eða á sveitarstjórnarstiginu. Mér finnst það vera afskaplega truflandi fyrir margt annað, margs konar áætlunargerð, þegar samgönguáætlun liggur ekki fyrir og hefur ekki legið fyrir í jafn langan tíma og raun ber vitni nú.

Mér finnst líka mikilvægt að við horfum, um leið og fjallað er um samgönguáætlun, lengra til framtíðar og förum þá yfir ýmis mál sem reifuð hafa verið í dag eins og framtíðarsýn varðandi til dæmis uppbyggingu atvinnu á norðausturhorninu, hvernig við sjáum fyrir okkur þróun almenningssamgangna og hvernig rafbílavæðing gæti haft áhrif á það hvernig við viljum byggja samgöngukerfið okkar upp. Það er svo ótal margt fleira sem við þurfum að horfa á en okkur hefur gefist tækifæri til að koma inn á í þessum umræðum í dag.