145. löggjafarþing — 101. fundur,  19. apr. 2016.

rannsóknarnefndir.

653. mál
[19:25]
Horfa

Ásta Guðrún Helgadóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er gaman að fá þetta frumvarp loksins inn í þingið og þessar breytingar. Það sem mig langaði til að spyrja um er hvort sérstaklega hafi verið litið til þess að rannsóknarnefndir eigi að skila tilteknum blaðsíðufjölda af þeim skýrslum sem rannsóknarnefnd skilar af sér. Í Evrópuþinginu er mjög strangt tekið fyrir að of löngum rannsóknarskýrslum sé skilað inn, of löngum skýrslum yfir höfuð. Þá er oft meiri samvinna milli þingmanna og þeirra sem sjá um rannsóknina. Ég heyrði að hv. þingmaður talaði bara um danska þingið og þær rannsóknarnefndir sem hafa verið þar. Það eru rannsóknarnefndir annars staðar í öðrum þingum og þar sem ég þekki best til, á Evrópuþinginu, stýra þingmennirnir sjálfir rannsókninni og hún fer að miklu leyti fram fyrir opnum tjöldum.

Að sama skapi langar mig líka til að spyrja hv. þingmann hvort þá sé ekki hægt að setja meiri kröfu á að þegar nefndir taka fyrir einstök málefni á opnum nefndarfundum og rannsaka þau ofan í kjölinn, sem gerðist með Borgunarmálið, vátryggingastarfsemina og fleira í þeim dúr, þá skili þær skýrslu. Það sem þá á sér stað er að opinber rannsókn þingsins felur ekkert endilega í sér rannsóknarnefnd. Mér þætti samt gaman ef nefndin þyrfti að skila einhverju af sér sem afrakstri þeirrar nefndarvinnu eins og hefur gerst í fjárlaganefnd með Borgun og fleira í þeim (Forseti hringir.) dúr. Ég vona að þú skiljir spurningu mína.