málaskrá og tímasetning kosninga.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að óska hæstv. forsætisráðherra til hamingju með afmælið; ég gerði mér ekki grein fyrir því að afmælisdagurinn hans væri í dag. Ég fagna því ef hæstv. forsætisráðherra vill funda með okkur á nýjan leik. Við höfum beðið þeirra upplýsinga sem hann sagði þá að væru væntanlegar mjög fljótlega nokkuð lengi. Hluti af því að endurbyggja traust er að standa við orð sín og koma hreint fram og að allir hlutir séu uppi á borðum.
Kjördagur í haust, virðulegi forseti, er ekki einkamál hæstv. forsætisráðherra eða ríkisstjórnarinnar eða, ef út í það er farið, okkar hér í þessum sal. Það er mikilvægt að senda þau skilaboð strax hvenær fólk geti búist við kosningum. Því að það getur vel verið að hvorki ég né hann verðum í forustuhlutverki í kosningum í haust eða okkar flokkar eða eitthvað slíkt. Það er bara þannig að það eru lýðræðislegar kosningar í þessu landi. Fólkið í landinu á rétt á því að fá að gera klárt fyrir kosningar, velja fólk á lista, búa til þau stjórnmálasamtök sem menn vilja búa til, leggja hlutina niður fyrir sér. Það er bara eðlileg krafa í lýðræðisríki til forustu í ríkisstjórn, sem hefur gefið ádrátt um að flýta kosningum, að hún útskýri hvenær þær kosningar verði svo að þeir sem hafa áhuga á afskiptum af þjóðmálum geti látið til sín taka og gefið kost á sér til setu á Alþingi.