145. löggjafarþing — 102. fundur,  20. apr. 2016.

ákvörðun um kjördag og málaskrá.

[15:58]
Horfa

forsætisráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni eins og ég gerði áður að mjög mikilvægt er að það liggi fyrir með nokkrum fyrirvara hvenær kosið er, m.a. vegna tæknilegra atriða eins og utankjörfundaratkvæðagreiðslu og eins að tækifæri sé fyrir lýðræðið að undirbúa sig og ganga til kosninga. Þess vegna hefðu kosningar innan 45 daga fyrir tveimur vikum ekki uppfyllt nein af þeim skilyrðum svo augljóst sé. Ég býst við að þingmenn séu sammála um það. Ég hef ekki verið að koma hér upp til þess að sannfæra sjálfan mig um nokkurn skapaðan hlut. Ég hlustaði í tæpan klukkutíma á þingmenn koma hérna upp og vera með ákall, í staðinn fyrir að taka kannski þessa umræðu, um eitthvað allt annað. Mér finnst mikilvægt að allir skilji að hér er starfandi þing og það er fullt af venjulegum málum og hér eru allir í fullu starfi að því. Það er bara eðlilegt að það haldi áfram. (Forseti hringir.) Svo mun það skýrast á næstu dögum, m.a. (Gripið fram í.) í samtali við stjórnarandstöðuna hvenær næstu (Forseti hringir.) skref verða tekin í þeim efnum. Mér finnst það fullkomlega eðlilegt. (Gripið fram í.)