145. löggjafarþing — 102. fundur,  20. apr. 2016.

útlendingar.

728. mál
[18:20]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf):

Virðulegur forseti. Ég vil hefja ræðu mína á því að óska hæstv. innanríkisráðherra til hamingju með að vera að leggja þetta frumvarp fram. Það er óskandi, og ég tek undir með öðrum hv. þingmönnum sem hafa talað á undan, að okkur auðnist að klára þetta mikilvæga mál á þessu þingi.

Það hefur verið mér mikill heiður og mjög mikil upplifun að mörgu leyti að fá að vinna að þessum málaflokki síðustu árin og stýra þingmannanefnd sem í sátu fulltrúar allra stjórnmálaflokka á Alþingi. Mér finnst mér það eiginlega skylt á þessum punkti að þakka fyrir tækifærið til að taka þátt í þeirri vinnu og þakka ég félögum mínum, hv. þingmönnum Unni Brá Konráðsdóttur, Líneik Önnu Sævarsdóttur, Össuri Skarphéðinssyni, Svandísi Svavarsdóttur og Birgittu Jónsdóttur, kærlega fyrir mjög gott og að ég vil meina gifturíkt samstarf.

Það er sömuleiðis full ástæða til að þakka hæstv. innanríkisráðherra og ekki síður fyrrverandi hæstv. innanríkisráðherrum, hv. þm. Ögmundi Jónassyni, sem hóf vinnu á síðasta kjörtímabili sem var að mörgu leyti grundvöllur að þeirri vinnu sem hér lítur dagsins ljós, og hv. þm. Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, sem setti starf þingmannanefndarinnar af stað. Þingmannanefndin hefur síðan notið dyggrar aðstoðar sérfræðinga innanríkisráðuneytisins en sömuleiðis velferðarráðuneytisins og sérfræðinga Útlendingastofnunar og Vinnumálastofnunar og átt mjög gott, ánægjulegt og gifturíkt samstarf við háskólasamfélagið, atvinnulífið, við félagasamtök á borð við Rauða krossinn o.fl. Það er full ástæða fyrir mína hönd til að þakka kærlega fyrir þetta ánægjulega samstarf.

Frumvarpið sem lítur hérna dagsins ljós er heildarendurskoðun á mjög breiðum og flóknum málaflokki. Titillinn, lög um útlendinga, setur af stað hugrenningar, fer eftir því um hvað menn eru að hugsa, hvort menn horfa á atvinnulífið eða hvort menn horfa til málefna flóttamanna sérstaklega eða hvað. En staðreyndin er sú að þetta er heildarskoðun á löggjöf sem kemur mjög víða við. Þegar þingmannanefndin hóf störf var samstaða um það í nefndinni að við mundum setja okkur eins konar leiðarljós í þessari vinnu, annars vegar að horfa á samkeppnishæfni landsins, skilvirkni gagnvart þeim sem þurfa að nota kerfin okkar, útlendinga sem sækja til Íslands af margvíslegum ástæðum og skilvirkni innan kerfisins til þess að taka á réttlátan og skilvirkan hátt á þessum málum og hins vegar mannúðarsjónarmiðin og að horfa sérstaklega til þess að skoða og fylgja því sem best er gert í þeim löndum sem við miðum okkur við, annars staðar á Norðurlöndum og í Evrópu, og að uppfylla skyldur Íslands í alþjóðlegum samningum eins og mannréttindasáttmálanum, barnasáttmálanum, flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna o.s.frv. Það er mjög mikilvægt þegar maður talar um að uppfylla skyldur alþjóðlegra samninga að gleyma því ekki að það eru ekki samningar sem voru neyddir upp á okkur Íslendinga, sem eru okkur sérstök kvöð að fylgja. Þvert á móti eru þeir samningar sem Ísland á þátt í, samningar sem Ísland tekur undir, vegna þess að á bak við samninga í mannréttindamálum er andi okkar á Íslandi, sem er sá að við viljum standa vörð um mannúð og mannréttindi. Það er okkur ekki aðeins skylt heldur ljúf skylda að haga málum okkar og löggjöf eftir þeim grunnprinsippum sem við höfum tekið þátt í að móta á alþjóðavettvangi.

Sú löggjöf sem við höfum núna er að mörgu leyti sniðin að öðrum tímum. Hún er orðin 15 ára gömul í grunninn og hún er sett við allt aðrar aðstæður í heiminum, sérstaklega aðstæður Íslands í heiminum. Á síðustu 15, 16 árum hafa verið gerðar ýmsar breytingar, yfirleitt til þess að bregðast við ástandi eða stöðu, og það verður að segjast eins og er að löggjöfin sem við búum við núna er orðin ansi mikill bútasaumur. Það var full ástæða til og í raun og veru mjög brýnt að þessi heildarendurskoðun færi fram. Það má orða það sem svo að sá sem hér stendur sé mjög stoltur af því og mjög ánægður að sjá að við séum loksins á þessu langa ferðalagi komin með útprentaða löggjöf hingað inn í þingið og í þá þinglegu meðferð sem tekur við.

Eins og hefur komið fram í ágætri framsögu hæstv. innanríkisráðherra, sem ég ætla ekki að endurtaka eða kafa ofan í sérstök smáatriði þar, og umræðunni sem þingmenn hafa átt við hæstv. innanríkisráðherra þá er málaflokkurinn kvikur. Við höfum horft á mjög miklar breytingar í alþjóðlega umhverfinu í Evrópu og stöðunni á Íslandi bara síðan þingmannanefndin hóf störf árið 2013, eða í upphafi ársins 2014. Við vitum að þær breytingar munu halda áfram en löggjöfin sem við leggjum fram miðast við stöðuna eins og hún er í dag. Hún miðar við að Ísland sé fullur þátttakandi í Schengen, að landamæri Íslands séu Schengen-landamærin og miðar að Dyflinnarsamstarfinu eins og það er í dag, en við gerum okkur fulla grein fyrir því í þessari stöðu í Evrópu að breytingar geta orðið.

Það hafa orðið nokkrar breytingar á frumvarpinu frá því að þingmannanefndin skilaði því af sér um miðjan nóvember. Frumvarpið kemur að starfsemi margra ráðuneyta. Málaflokkurinn er það breiður að þótt innanríkisráðuneytið hafi yfirumsjón með útlendingamálum, Útlendingastofnun er stofnun ráðuneytisins, er stór hluti af málaflokki útlendinga annars staðar; í velferðarráðuneytinu þar sem innflytjendamálin og stuðningur við innflytjendur á Íslandi eru, í menntamálaráðuneytinu, í fjármálaráðuneytinu. Það er skiljanlegt að frumvarp af þessari stærðargráðu, sem hefur víða skírskotun, hafi verið skoðað í mörgum ráðuneytum.

Það hafa orðið einhverjar breytingar á frumvarpinu sem ég vil segja að séu ekki í þvílíkum grundvallaratriðum að þær breyti anda frumvarpsins eins og þingmannanefndin skildi við það en það er full ástæða til þess í þinglegri meðferð, og ég hvet allsherjar- og menntamálanefnd hæstv. til þess, að skoða málið vel. Sá sem hér stendur, og að ég vil meina þingmannanefndin öll, er reiðubúin til að styðja við vinnuna í nefndinni.

Mig langaði að staldra við tvær breytingar sem gerðar hafa verið sem ég held að ástæða sé til þess að skoða sérstaklega. Það er annars vegar að gert er ráð fyrir því að ekki verði sjálfkrafa frestur réttaráhrifa í kærumálum útlendinga. Þetta atriði var mikið rætt í þingmannanefndinni og störfum hennar. Ég held að mikilvægt sé að horfa á það frá báðum áttum, þ.e. að þegar kærumál koma upp eru skyldur íslenska ríkisins líka orðnar miklar þannig að það er mikilvægt að horfa til þess ef réttaráhrif frestast ekki sjálfkrafa að íslenska ríkið lendi ekki í vanda ef það er síðan dæmt kæranda í vil.

Sömuleiðis gerir frumvarpið eins og það lítur núna út ráð fyrir því að dvalarleyfi umsækjenda um alþjóðlega vernd verði þrjú ár en ekki fjögur líkt og við höfðum gert ráð fyrir í frumvarpinu eins og þingmannanefndin lagði það fram. Ég held að ástæða sé til að skoða það, ekki einungis í samræmi við löggjöf nágrannalandanna heldur líka í samræmi við annan rétt þessara umsækjenda. Ég vísa því til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að kíkja á þau atriði sérstaklega.

Að því sögðu vil ég taka fram að ég fagna því að frumvarpið er loksins komið fram á Alþingi og geti fengið hina hefðbundnu þinglegu meðferð, það fer til nefndar og verður kallað eftir umsögnum. En fyrir mér er það ekki síst gaman vegna þess að það er svo sögulegt ferlið sem við höfum átt fram að þessu. Það er að mörgu leyti einstakt með svona stórt frumvarp sem er lagt fram af ráðherra að það sé unnið með jafn mikilli þverpólitískri aðkomu og þetta frumvarp og með breiðu samráði út í samfélagið, út í stofnanir, eins og var gert.

Ég hef fulla trú á því að það veganesti sem frumvarpið hefur með þessu muni fylgja því inn í þingið. Ég tel líka að það geri það að verkum að frumvarpið eins og það er lagt fram af hæstv. ráðherra núna sé sterkara, horfi til fleiri sjónarmiða og standist betur þær grunnkröfur, þau grunnprinsipp sem við einsettum okkur þegar við hófum vinnuna, að horfa til skilvirkni, samkeppnishæfni og ekki síst til mannúðar og þeirrar hugsunar að málefni útlendinga byggi á kerfum, kerfum á breiðum grundvelli en inn í kerfunum er hvert mál einstakt, mál einstaklings, einstaklings sem á rétt á mannréttindum og á rétt á mannúð. Það er í fullu samræmi við grunnhugsun í íslensku samfélagi, þar viljum við vera. Ég vil segja nokkuð stoltur að ég held að okkur hafi tekist ágætlega til.