útlendingar.
Forseti. Við ræðum frumvarp til laga um útlendinga sem er að mörgu leyti merkilegt mál og ekki aðeins vegna inntaksins og innihaldsins og vegna þess hversu samferða vinnan í þingmannanefndinni hefur verið sífellt sterkara ákalli í samfélaginu og í heiminum, heldur kannski fyrst og síðast vegna þess að með þessari vinnu, ef okkur lánast að sigla henni alla leið, sýnum við að við lærðum eitthvað af hruninu, að við gátum unnið öðruvísi, að við þorðum að treysta hvert öðru og að við þorðum að setja í gang og viðhalda vinnu sem ekki byggði á hefðbundnum hugmyndum um meiri hluta og minni hluta, heldur um það að svona verkefni ætti fyrst og fremst að vera torg góðra hugmynda sem væru leiddar til lykta með rökum og með trausti og með trúmennsku gagnvart því mikilvæga og viðkvæma máli sem þarna er undir. Það er ekki svo að við sem erum í stjórnmálunum séum sérstaklega í fókus fyrir það að vera almennilegt fólk og ekki sérstaklega fyrir það að stunda almennilega vinnu og hvað þá að pólitík sé eitthvað sem sé eftirsóknarvert að taka þátt í.
Ég vil af þessu tilefni nefna þennan þátt sérstaklega, þ.e. vinnuna sem slíka. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hlut hennar í því og starfsfólki innanríkisráðuneytisins sem hefur komið að þessari vinnu, velferðarráðuneytinu og þeirri vinnu og hv. þm. Óttari Proppé fyrir að sitja í öndvegi á oft mjög kúnstugum fundum sem voru þó alltaf málefnalegir og alltaf góðir, ekki alltaf mjög skipulagðir en alltaf leið fram á við. Við áttum í óvenjumiklu samráði við alla mögulega aðila úti í samfélaginu, við þá sem best þekkja til, við Útlendingastofnun, við lögregluna, við þá lögmenn sem hafa helst axlað þessar flækjur og flóknu verkefni, við grasrótarhreyfingar sem hafa verið róttækastar í þessum málaflokki, við Rauða krossinn o.s.frv. Fyrst og fremst tókumst við sem sátum í þingmannanefndinni á við það, og stundum þurftum við beinlínis að hafa orð á því, að leyfa þessari vinnu að vera í friði fyrir öðrum átökum sem við algjörlega skuldlaust tókum fullan þátt í af fullum krafti í þinginu og í nefndum þingsins. Mér finnst mikilvægt að við gætum að þessu. Við höfum stundum talað um það í nefndinni að það mætti halda þeim þætti sérstaklega til haga. Þó að hann sé sannarlega mikilvægur fær hann ekki sérstaklega mikið vægi í greinargerðinni eða í þeim pappírum sem koma frá ráðuneytinu. En ég treysti því, ef okkur lánast að gera þetta að lögum, að við sem skipuðum þingmannanefndina með okkar góða fólki í innanríkisráðuneytinu náum að taka utan um þennan þátt sérstaklega, vegna þess að þetta er módel sem á að setja fleiri stór og þverpólitísk mál í.
Þetta er háttur sem er viðhafður annars staðar á Norðurlöndum, sem við höfum því miður ekki getað tileinkað okkur í nægilega ríkum mæli, sem er stundum kölluð hvítbókarleiðin eða sú leið að byrja á því að fanga málið mjög ítarlega áður en farið er í frumvarpssmíð. Við höfum því miður oftar en ekki haft þann háttinn á á Íslandi að það eru kannski tveir starfsmenn ráðuneytisins og einn lögfræðingur utan úr bæ sem eru settir niður við að skrifa frumvarp, síðan fer það sína leið og svo lendum við í kúvendingum við kosningar og væntingum um það að venda málum. Ég held að stórir málaflokkar eins og málefni útlendinga, við höfum líka rætt um fangelsismál, um dómstóla, um skipulagsmál, um málefni skólakerfisins, menntakerfisins, málefni heilbrigðisþjónustunnar, þetta eru allt mál sem eiga að vera í farvegi af þessu tagi og það væri þroskaskref fyrir íslenska þingið og íslensk stjórnmál ef okkur lánaðist að stíga það í verklagi varðandi fleiri stóra málaflokka. Þess vegna vil ég staldra sérstaklega við það.
Hv. þm. og fyrrverandi innanríkisráðherra Ögmundur Jónasson á, má segja, grunninn að þeirri vinnu sem við höfum farið í. Ég vil sérstaklega geta þess og þakka fyrir að því hefur verið kirfilega til haga haldið í allri þessari vinnu. Menn hafa ekki verið uppteknir af því að merkja sér einstaka kafla í verkefninu heldur fyrst og fremst leyft verkefninu að njóta sín. Það hafa verið ráðherrar sem hafa haft til þess pólitíska burði og pólitíska stærð að gera það þannig og ekki síður hv. þm. Óttarr Proppé.
Það sem mér hefur þótt vænst um í þessu máli — og hér er málið til 1. umr. og við erum að koma því til nefndar og hv. þm. Unnur Brá Konráðsdóttir er þar í öndvegi allsherjar- og menntamálanefndar og er málið þar í afar góðum og traustum höndum — er að við horfum í raun og veru til miklu jákvæðari tóna. Frumvarpið er miklu jákvæðara og þrungnara mannúð og mannréttindum heldur en lög sem ég vona að ég geti og megi kalla fráfarandi lög um útlendinga. Tónn í löggjöf er nefnilega mikilvægur líka. Það er ekki aðeins svo að við séum að skrifa harðan og hráan texta heldur erum við líka að segja sögu, við erum að segja sögu um það hvernig samfélag við viljum byggja. Minn bakgrunnur er málfræði en ekki lögfræði, þótt ég hafi gaman af lögfræði, og það er fullt af ljóðrænu í lögum og það er fullt af millitexta og undirtexta. Það hvernig orð maður velur og hvaða orðfæri maður notar segir líka mikið um vilja löggjafans. Það er kannski ekki sá vilji sem kemur til kasta dómstóla á hverjum tíma heldur sá vilji sem endurspeglar andann í samfélaginu á hverjum tíma og segir hvort við viljum opna fangið eða hvort við viljum ekki gera það.
Því er ekki að leyna að það eru nokkrar breytingar, sem hv. þm. Össur Skarphéðinsson kom að, sem voru gerðar frá því að þingmannanefndin skilaði málinu til ráðherra og þangað til við fengum það til þingsins. Nokkrar af þeim breytingum eru að mínu mati ekki til bóta. Þær hafa verið nefndar, bæði í andsvörum við hæstv. ráðherra en ekki síður í ræðum, bæði hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar og hv. þm. Óttars Proppés, og það eru málin sem lúta að frestun á réttaráhrifum, búsetuleyfi þar sem togast á fjögur ár og þrjú ár, breytingar á tímamörkum í fjölskyldusameiningu og mál fylgdarlausra barna og endurmat við 18 ára aldur. Þetta tel ég allt saman vera þætti sem nefndin þarf að taka til sérstakrar skoðunar. Það er mér fullljóst, eins og kemur fram í rökstuðningi og andsvörum hæstv. ráðherra í nokkurri tímaklemmu, að við erum í kviku andrúmslofti og það er mikil deigla í málaflokknum. Við endurspeglum að sumu leyti umræðuna í löndunum í kringum okkur en mín hvatning er sú að við freistum þess áfram að vera í frumvarpinu og væntanlega í löggjöfinni í forustu í málaflokknum og vera sá staður sem hin norrænu ríkin munu líta til í sinni nýju löggjöf þegar til hennar kemur og leiðarljós okkar verði fremur Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna og slíkir aðilar. Hér er um stjórnarfrumvarp að ræða og allt gott um það að segja að hæstv. ráðherra komi að málinu með áherslum sínum og tilteknu breytingum sem við glímum við, en í ljósi pólitísks veruleika málsins vil ég líka nefna að um er að ræða hárfínt jafnvægi milli gagnstæðra sjónarmiða að sumu leyti, milli sjónarmiða sem einkenna og endurspegla gríðarlega þunga og alvarlega undiröldu í sumum löndum í kringum okkur, sum þeirra landa hafa ekki glímt við slíka undiröldu um langt skeið. Við sjáum slíka undiröldu stundum dúkka upp í nýjum flokkum og nýjum framboðum sem gera út á ótta gagnvart útlendingum og ótta gagnvart því sem koma skal, sem eru miklu, miklu meiri flutningar fólks heimshluta á milli til þess að flýja stríðsátök, eins og hér eru helst undir á vettvangi dagsins, en ekki síður til þess að flýja umhverfisvá sem verður líka vaxandi viðfangsefni.
Evrópa hefur áður glímt við mikla þjóðflutninga og stundum meiri þjóðflutninga en akkúrat núna. Evrópa er sérstaklega vel til þess fallin núna að glíma við vandamál af þessu tagi. Þó að maður beini ekki sjónum að því hvar sökina er að finna, þ.e. það að setja stríðsátökin í gang yfir höfuð og stemma ekki fyrst og fremst stigu við þeim, þá er það þannig að á Vesturlöndum og í Evrópu eru ríkustu og stöðugustu velferðarsamfélög heims sem ættu af myndarskap og sterkri mannúðlegri löggjöf að taka á þessu viðfangsefni þannig að sómi sé að í þeim löndum. Þar vil ég og finnst mikilvægt að Ísland sé fánaberi. Mér finnst að við eigum að setja okkur það markmið.
Eins og hefur komið ítarlega fram erum við að tala um ákveðna þætti sem eru gríðarlega mikilvægir og hafa ekki verið í nægilega góðum skorðum. Það er kannski fyrst og fremst grundvöllurinn, skýrari grundvöllur fyrir alþjóðlegri vernd erlendra ríkisborgara og einstaklinga án ríkisfangs sem eiga þennan rétt samkvæmt alþjóðlegum skuldbindingum sem við erum aðilar að, sem ég held að sé betra að kalla alþjóðlegan vilja heldur en skuldbindingar því að það hljómar eins og við séum undirokuð eða þrúguð af þeim skuldbindingum en það er af því við viljum vera fólk meðal fólks og þjóð meðal þjóða.
Í þessu frumvarpi er líka kveðið með mun skýrari hætti á um réttarstöðu og réttaröryggi útlendinga. Auðvitað er það svo og ætti að vera svo að það þyrfti enginn að spyrja um það að útlendingar nytu sambærilegs réttaröryggis við okkur hin og að við þyrftum ekki að færa það sérstaklega í lög að um sjálfsögð mannréttindi væri að ræða meðan fólk bíður úrlausnar mála sinna.
En það er allt gert hér. Ég verð að játa það, forseti, að ég hef sérstakar mætur á ákveðnum köflum í greinargerðinni. Ég held að það sé næstum því þannig að innanríkisráðherra gæti gefið út sérrit með völdum köflum í greinargerðinni því að það eru svo góðir kaflar og við gætum jafnvel notað það í jólagjafir eða eitthvað, við sem vorum í þingmannanefndinni, því að það eru svo fín sjónarmið og góð sjónarmið sem við eigum að vera stolt af og fara með um lönd og álfur ef því væri að skipta.
Það er svo að ekki verður farið í þetta gríðarlega stóra frumvarp lið fyrir lið vegna þess að það er langt og mikið. Ég treysti því að hv. allsherjar- og menntamálanefnd fari vel ofan í saumana á þessum málum og málið komist til nefndar áður en við ljúkum þessum þingfundi og verði sent út til umsagnar strax að afloknum þessum þingfundi. Það er óendanlega mikilvægt í raun, burt séð frá öllum pólitískum klemmum og forgangsmálalistum og kjördögum og nýjum forsætisráðherrum og stigafundum og hvað þetta nú allt saman heitir, að okkur lánist að klára frumvarp til laga um útlendinga, gera þau að lögum. Ef við förum með þennan málaflokk opinn inn í aðdraganda kosninga hef ég áhyggjur af því að þá geti farið að loga eldar sem verði erfiðara að glíma við. En ég mun leggja mitt af mörkum til þess að þetta mál fái brautargengi og því ljúki og verði að lögum.