145. löggjafarþing — 103. fundur,  28. apr. 2016.

Panama-skjölin og afleiðingar þeirra.

[10:58]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Hæstv. forseti. Ég sé mig knúna til að koma hingað upp því að ég er algjörlega ósammála hæstv. forsætisráðherra í því hvernig þjóðin lítur á það hvernig við verjum tíma okkar á Alþingi og hvar áherslan eigi að vera, þar á meðal hvernig við nýtum þennan lið, fundarstjórn forseta. Ég heyri kannski aðrar raddir en hæstv. forsætisráðherra en við endurspeglum líka ólíka hópa í samfélaginu og þess vegna er eðlilegt að við endurspeglum ólíkar raddir hér inni. Það sem ég heyri er spurningin: Af hverju er ekki meiri áhersla á að ræða veru ráðamanna í hæstv. ríkisstjórn í Panama-skjölunum? Af hverju er ekki verið að ræða meira á Alþingi af hverju hæstv. ráðherrar hafa ekki sagt af sér? Og af hverju er haldið áfram (Forseti hringir.) með þingmálin eins og ekkert hafi í skorist?

Þetta er það sem ég heyri frá þjóðinni. Mér finnst mikilvægt að það komi hér fram líka og þess vegna er ég algjörlega ósammála hæstv. forsætisráðherra.