ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 229/2015 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn.
Virðulegi forseti. Með þessari þingsályktunartillögu er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 229/2015 um breytingu á XX. viðauka við EES-samninginn um umhverfismál og fella inn í samninginn tilskipun um losun í iðnaði og tengdar gerðir.
Tilskipunin sameinar eldri gerðir um mengunarvarnir sem hafa verið teknar upp í EES-samninginn og innleiddar hér á landi. Um er að ræða endurútgáfu og uppfærslu á eldri gerðum í þeim tilgangi að auka skýrleika reglnanna. Með tilskipuninni eru samþætt mál sem varða tiltekna mengandi starfsemi og gengur tilskipunin lengra en eldri tilskipanir. Tilskipunin byggist á nálgun þar sem taka skal tillit til umhverfisins í heild, þ.e. mengunar í lofti, vatni og jarðvegi. Meðal helstu nýmæla hennar eru ákvarðanir á bestu aðgengilegu framleiðsluaðferðum og tækjakosti sem beitt er í tiltekinni starfsemi til að lágmarka mengun og myndun úrgangs frá starfseminni.
Innleiðing gerðanna kallar á lagabreytingar hérlendis og er gert ráð fyrir því að hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra leggi fram frumvarp til breytinga á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir á yfirstandandi þingi.
Þar sem umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Því er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst svo aflétta megi hinum stjórnskipulega fyrirvara.
Ég legg til, virðulegi forseti, að að lokinni þessari umræðu verði tillögunni vísað til hv. utanríkismálanefndar.