145. löggjafarþing — 104. fundur,  29. apr. 2016.

störf þingsins.

[10:46]
Horfa

Þorsteinn Sæmundsson (F):

Hæstv. forseti. Nýlega bárust fréttir af því að greiðslukortafyrirtækið Borgun hefði greitt út 2,2 milljarða kr. í arðgreiðslur.

Þessi arðgreiðsla til eigenda Borgunar sýnir enn einu sinni hvílík hörmungarákvörðun það var af hálfu stjórnenda Landsbankans að selja hlut ríkisins í Borgun í lokuðu söluferli án þess að fleiri kæmust þar að.

Sú ráðstöfun, auk þess hvernig landsbankamenn hafa hrakist úr einu víginu í annað til að reyna að réttlæta þennan gjörning, hefur leitt til þess að meiri hluti fyrrverandi bankaráðs hefur sagt af sér, þar á meðal fyrrverandi formaður ráðsins sem er valinkunnur sómamaður.

En það var ekki fyrrverandi bankaráð Landsbanka Íslands sem seldi Borgun í lokuðu söluferli. Það var ekki bankaráð Landsbankans sem ákvað að hluturinn skyldi seldur þeim fyrsta sem bankaði á dyrnar, á verði sem menn vissu ekki hvort var viðunandi og síðan hefur komið í ljós að var alls óviðunandi. Það voru bankastjóri Landsbankans og yfirstjórnendur Landsbankans sem seldu þennan hlut og stóðu að sölunni. Þeir sitja enn.

Bankasýsla ríkisins hefur gert svo alvarlegar athugasemdir við framgöngu stjórnenda bankans í þessu máli að ég get ekki séð hvernig nýtt bankaráð, sem Bankasýsla ríkisins skipaði um daginn, kemst hjá því að gera breytingar á yfirstjórn bankans þannig að um hann og starf bankans megi ríkja sæmilegt traust.

Það skiptir ekki máli hvort bankastjóri Landsbankans og samstarfsmenn hans ætli í mál til að reyna að fá til baka eitthvað af því sem þeir glutruðu niður með mistökum. (Forseti hringir.) Það skiptir engu máli. Það þarf að skipta út yfirstjórn Landsbankans vegna þessa máls.


Tengd mál

Efnisorð er vísa í ræðuna