rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.
Herra forseti. Panama-skjölin upplýstu um mein í íslensku samfélagi sem var miklu dýpra og hafði greinilega sollið miklu lengur en nokkurn hafði órað fyrir. Ég verð að segja alveg eins og er að miðað við umfang þess máls í íslensku samfélagi, miðað við hversu það hefur hrært upp í hugum okkar á Alþingi og líka meðal landsmanna, finnst mér með ólíkindum að í þessari umræðu skuli hvorki hæstv. fjármálaráðherra né hæstv. forsætisráðherra vera viðstaddir. Mér finnst það ekki hægt, sér í lagi í ljósi þess að hæstv. fjármálaráðherra hefur tjáð sig um þessar tillögur með þeim hætti að hann verður að koma hingað til þess að gera skýrari grein fyrir skoðunum sínum.
Fyrsta spurning mín til hv. þingmanns er: Ætlar hún sem fyrsti flutningsmaður þessa máls að una því að hæstv. fjármálaráðherra, sem farið hefur háðuglegum orðum um það hversu lítil þörf sé á því þingmáli sem hún ber hér fram, skuli vera fjarstaddur? Mér finnst það hvorki mönnum né hundum bjóðandi.
Herra forseti. Ég tel að í ljósi þess að hæstv. fjármálaráðherra hefur nánast lýst blessun sinni á því sem hann kallar heilbrigða skattasamkeppni verði hann að koma hingað og gera okkur grein fyrir því. Það er annað sem hæstv. fjármálaráðherra hefur sagt, hann hefur sagt að það sé í reynd ekki þörf á þessari tillögu sem ég styð heils hugar, eins og fram hefur komið margsinnis hjá mér áður. Hann hefur vísað til tveggja þátta, í fyrsta lagi þeirra upplýsingaskiptasamninga sem við hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon gerðum á síðasta kjörtímabili og sömuleiðis laga um CFC-reglur. Hann segir að í reynd sé þetta nóg til þess að koma höndum og ef til vill lögum yfir þá skattaskálka sem falið hafa fé sitt í erlendum reikningum. Mig langar til að spyrja hv. þingmann um afstöðu hennar til þessara einu málefnalegu raka (Forseti hringir.) hæstv. fjármálaráðherra: Telur hún að þessi tæki gangi nógu langt? (Forseti hringir.) Telur hún að það séu málefnalegar ástæður sem duga fyrir því að hæstv. fjármálaráðherra (Forseti hringir.) ætlar bersýnilega ekki að koma til umræðunnar eða að styðja málið?