145. löggjafarþing — 104. fundur,  29. apr. 2016.

rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.

711. mál
[12:09]
Horfa

Helgi Hjörvar (Sf) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Að formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, sé ekki viðstaddur þessa umræðu hlýtur að koma öllum hér á óvart. Þetta mál snýr að þeim skattaskjólsmálum sem mjög hafa brunnið á ríkisstjórninni. Forustumaður annars stjórnarflokkanna axlaði að minnsta kosti að hluta til ábyrgð í málinu og vék sem forsætisráðherra, en óhjákvæmilegt er að fjármálaráðherra sé hér til andsvara. Ekki er um að ræða Gervimann í útlöndum, sem nefndur var í ýmsum þeim félögum sem falin voru á þessum aflandseyjum. Það er algerlega nauðsynlegt að formaður Sjálfstæðisflokksins sé viðstaddur umræðuna, sérstaklega þegar þingflokkarnir hafa gert með sér samkomulag um þinghaldið í þessari viku, hvenær tiltekin mál yrðu tekin hér til umræðu. Þá var það auðvitað gert á þeirri forsendu að allir yrðu viðstaddir þá umræðu en ekki þannig að stjórnin fengi að afgreiða þau mál sem henta henni (Forseti hringir.) og gæti svo bara skilið stjórnarandstöðuna eftir inn í helgina með stærstu mál samfélagsins.