145. löggjafarþing — 104. fundur,  29. apr. 2016.

rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.

711. mál
[12:23]
Horfa

Össur Skarphéðinsson (Sf):

Herra forseti. Ég tel að það mál sem hér liggur undir sé eitt af þeim mikilvægustu sem Alþingi þarf að ræða áður en við göngum til kosninga. Ég tel að ekkert þingmál sem hæstv. ríkisstjórn hefur að minnsta kosti enn þá lagt fram sé jafn mikilvægt og þetta mál.

Ég tek undir með hv. þm. Elínu Hirst, að vitaskuld eiga menn að reyna að fara málefnalega í þetta mál. En það skiptir auðvitað miklu varðandi framgang málsins að geta átt rökræn og málefnaleg samskipti við þá sem fara með framkvæmdarvald í því.

Það er þess vegna, hv. þingmaður, sem æskilegt er að hæstv. fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins komi til þessarar umræðu vegna þess að hann hefur á umliðnum dögum, síðast í gær, sett fram skoðanir sem koma manni á óvart. Hann hefur meðal annars talað í þá veru, eða ég hef að minnsta kosti skilið það svo, að það sem hann leyfir sér að kalla skattasamkeppni, sem felst í því að eylendur úti í heimi bjóða upp á lægri skatta en gerist í heimalandinu, sé af hinu góða. Ég er því algjörlega ósammála.

Mér finnst mikilvægt í þessari umræðu að afstaða hæstv. ríkisstjórnar liggi fyrir. Mér finnst sömuleiðis mikilvægt að fá það fram hjá hæstv. ráðherra, vegna þess að það er hann sem býr yfir þeirri þekkingu, hver reynslan hefur orðið af þeim upplýsingaskiptasamningum og CFC-lögum sem samþykkt voru í tíð síðustu ríkisstjórnar. Hæstv. fjármálaráðherra hefur talað eins og það sé í reynd nóg og þar séu tækin komin sem geri okkur kleift að fá allar þær upplýsingar sem við þurfum.

Ég vil fá að ræða það við hæstv. fjármálaráðherra vegna þess að það eru lykilþættir í umræðunni. Ég ímynda mér að þau kunni að skipta sköpum um með hvaða hætti málið fær framgang. Það er þess vegna sem það skiptir máli að að minnsta kosti lykilaðilar í ríkisstjórninni sem búa yfir upplýsingum um reynsluna af þessu komi til umræðunnar.

Í ljósi þess hvernig málið hefur vakið upp gríðarlega ólgu í samfélaginu og velt fram nýjum sannindum sem voru furðuleg, að minnsta kosti fyrir mig, ég vissi einfaldlega ekki að málið væri svona vaxið, þá finnst mér það mikilvægt að þetta sé rætt af öllum í þinginu, þ.e. að allir flokkar komi að þessum málum.

Mér finnst sérstaklega mikilvægt að þeir flokkar sem málið stendur kannski næst, Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn, gefi upp sína afstöðu.

Ég tel til dæmis að í þessari umræðu eigi ég heimtingu á því að formaður efnahags- og viðskiptanefndar, hv. þm. Frosti Sigurjónsson, láti hér yfir þetta púlt ganga hvaða afstöðu hann hefur í þessu.

Ég tel að ég eigi heimtingu á því í lykilmáli sem þessu að ég viti hvaða afstöðu Sjálfstæðisflokkurinn hefur í málinu. Ég hef sagt það algjörlega skýrt að ég tel að það mál sem hérna er sé angi af aðgerðum sem nauðsynlegt er að við samþykkjum eftir yfirlegu og umfjöllun í þessu þingi til þess að það sé hægt að minnsta kosti að draga upp einhvers konar vísi að samfélagssátt um það hvernig við viljum búa saman í þessu landi.

Hvað var það sem Panama-skjölin afhjúpuðu og uppljóstruðu? Að minnsta kosti í mínu tilviki sýndu þau mér fram á það í fyrsta lagi að hér eru tvær þjóðir sem ferðast á mismunandi farrýmum. Það er örlítill hluti þjóðarinnar, hinir efnameiri, þeir sem hafa mest fjármagn undir höndum sem virðist mögulegt að geta fært sig í tímanum á fyrsta farrými án þess að borga það sama og við hin sem erum á almenna farrýminu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Með öðrum orðum, upplýsingar Panama-skjalanna undirstrika það að hér eru tvær þjóðir sem búa við mismunandi kjör. Það er annars vegar hinn fámenni hópur sem á peninga og getur komið þeim fyrir í skattaskjólum, partur af þessum hópi bersýnilega til þess að svíkja undan skatti, annar til þess að borga minni skatta og hugsanlega þriðji parturinn sem ekki vill láta koma fram eignarhald sitt á þessu.

Hins vegar erum það svo við sem þurfum að búa í þessu landi, almenningurinn í gjánni sem þarf að búa með krónuræfilinn sem ekki er gjaldgengur miðill í útlöndum, á sama tíma og hinir geta valsað um með arðinn af auðlindum okkar, eins og í sumum tilvikum er reyndin, og gert það sem þeir vilja.

Í öðru lagi verð ég að segja að þetta birtir líka aðra mynd sem ég gerði mér ekki heldur grein fyrir að hefði verið til staðar. Það sem Panama-skjölin sýna fram á er að hér var á froðuárunum fyrir hrun í reynd búið til færiband þar sem peningar voru fluttir út úr froðuhagkerfinu, breytt úr pappírspeningum hér á Íslandi, fóru í gegnum bankann yfir í útibú bankans í útlöndum og síðan eftir ýmsum leiðum í skattaskjól þar sem þeir voru faldir, þar sem eignarhald er í sumum tilvikum ekki gefið upp og þar sem í mörgum tilvikum er ekki hægt að sannreyna hvort að skattar og skyldur hafi verið gefin upp í samræmi við íslensk lög.

Þetta er kannski það voðalegasta í þessu máli öllu saman. Það kemur í ljós að þeir sem mest hafa borið úr býtum, hafa auðgast á því að geta haft nýtingarrétt af auðlindinni, hafa farið fyrir tilstilli þjónustu bankanna með peningana út úr samfélaginu og sett þá í sjóði í útlöndum, sumir hafa falið þá, beinlínis í einhverjum tilvikum til þess að þurfa ekki að taka þátt í því að greiða fyrir sinn hlut í velferðarsamfélaginu.

Það er á þetta sem ég get heimfært orð eins af spekingum Sjálfstæðisflokksins sem í hárri elli sinni sagði að þetta samfélag væri ógeðslegt. Þetta er ógeðslegt. Mér rennur það til rifja að búa í samfélagi þar sem svona viðgengst. Það er þetta sem við þurfum að tala saman um hérna. Við þurfum sem löggjafarsamkoma að reyna saman með einhverjum hætti að koma í veg fyrir að þetta sé gert því að þetta er ómóralskt og þetta er að minnsta kosti í sumum tilvikum siðlaust og ólöglegt.

Ég held að allir þeir sem hér sitja í þessum sal hljóti að vera mér sammála um það.

Fyrsta skrefið til þess að kanna umfang þessa máls hlýtur að vera að kortleggja það. Það er þess vegna sem ég lagði áherslu á það í framlagi mínu í umræðunni um stefnuræðu nýs forsætisráðherra að kortleggja vandann.

Tillaga hv. þingmanna Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs er nákvæmlega um það. Það er þess vegna sem ég styð hana heils hugar. Ég á eftir að sjá þetta þing standa upp og ljúka fullt af málum án þess að þetta mál fái áheyrn hjá þinginu og fái afgreiðslu hjá þinginu.

Til viðbótar þessu tel ég að til þess að koma í veg fyrir að hægt sé að beita þessum leiðum til þess að komast hjá því að greiða sína skatta og skyldur þurfi Alþingi líka að íhuga að banna Íslendingum að eiga reikninga í skattaparadísum og aflandseyjum þar sem ekki er ljóst að stjórnvöld hlíta þeim stöðlum sem OECD hefur sett um lög og reglur varðandi upplýsingaskil. Ef ekki þá munum við áfram búa við það að Íslendingar geti átt slíka reikninga, gefið upp eigur eins og þeim sýnist sjálfum án þess að við eða íslensk skattyfirvöld getum með nokkrum hætti sannreynt það.

Ég er líka sammála hv. þm. Oddnýju G. Harðardóttur sem sagði hér áðan að hún teldi að það yrði líka að rannsaka tilurð þess máls. Förum í það. Með hvaða hætti varð þetta til? Hvernig skapaðist það ástand að hér á Íslandi eru tífalt fleiri eigendur aflandsreikninga en í ýmsum löndum sem við berum okkur saman við? Hver var tilgangurinn? Hvaða bankar voru þetta? Af hverju réðust menn í þetta?

Ég tel líka að fara þurfi yfir þær breytingar sem hér voru gerðar í fyrra. Ég fór hamförum gegn því að aflagður væri svokallaður Tortóluskattur. Hér voru menn í þessum sal sem héldu því fram að hann skipti engu máli vegna þess að þetta væru svo litlir peningar sem þarna töpuðust. Nú er komið í ljós að í þessum skattaparadísum á Tortólu er um að ræða reikninga þar sem menn geyma vaxtaberandi pappíra. Og við vorum hér á þessu þingi í fyrra að fella niður skatta á það. Það var ég sem kallaði þetta Tortóluskattinn, en svar stjórnarliðsins var að þetta skipti engu máli, umfangið væri svo lítið. Við þurfum líka að fara í það.

Svona að lokum, herra forseti. Hér var á sínum tíma samþykkt að gera rannsókn á einkavæðingu bankanna. Þó að það sé ekki algjörlega tengt þessu er alveg ljóst að það voru hinir einkavæddu bankar sem höfðu forgöngu um aflandsreikningana. Því (Forseti hringir.) skora ég nú á þingheim að skera upp herör fyrir því að við ráðumst í rannsókn á einkavæðingu bankanna (Forseti hringir.) vegna þess að þar á margt óhreint eftir að koma úr pokahorninu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)