rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.
Ég taldi að það væri mikill agnúi bæði á ESB-samstarfinu og EES-samstarfinu að ekki væri hægt að uppræta þá starfsemi sem felst í því að koma fyrir fé í skattaparadísum sem ekki væri hægt að fá upplýsingar um hvort menn væru að beita til þess að stela undan skatti.
Nú liggur fyrir að það er hægt og það breytir náttúrlega miklu. Þannig að ég er þeirrar skoðunar að Ísland ætti, ef það fer í Evrópusambandið, með öðrum smáþjóðum að hafa forgöngu að því að taka undir og hrinda til framkvæmda tveimur ef ekki þremur ályktunum Evrópuþingsins um að það beri að uppræta öll skattaskjól.
Það er svarið, svo ég árétti það, við fyrri spurningunni.
Varðandi síðari spurninguna um John Kay þá er það einfaldlega þannig: Ég geri greinarmun á þeim sem eru heiðarlegir og óheiðarlegir. Ég geri greinarmun á þeim sem stela og þeim sem stela ekki. Ég geri greinarmun á þeim sem svíkja meðvitað undan skatti og hinum sem ekki gera það.
Það breytir ekki neinu um þá afstöðu mína að ég vil uppræta þessar skattaparadísir. Í dag er það þannig að menn geta með löglegum hætti komið fé fyrir í skattaparadísum, gefið íslenskum yfirvöldum upplýsingar sem benda til þess að þeir séu að greiða eðlilega skatta en eru eigi að síður staðsettir í þannig skattumhverfi að íslenskt yfirvald getur ekki gengið úr skugga um að það sé satt. Slík starfsemi er algjörlega á gráu svæði.
Ég vil ekki leyfa reikninga í eigu Íslendinga á slíkum svæðum vegna þess að nú liggur fyrir að okkur er heimilt að banna það.
En bara til þess að öllu sé til haga haldið: Ég er á móti skattaparadísum og þeirri tegund skattasamkeppni.