rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.
Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki alveg á því hvert hv. þingmaður er að fara með þessum málflutningi. Hann er búinn að finna erlendan fyrirlesara sem kom hér í gær og ég á að vera búin að mótmæla og sennilega skrifa blaðagrein til að mótmæla ummælum hans þar sem hann gerir greinarmun á lögmætri starfsemi og glæpum á borð við skattundanskot. Auðvitað gerum við öll greinarmun á lögmætri starfsemi og glæpum, en við vitum líka að lögmæt starfsemi getur falið í sér siðleysi. Það sem við erum að ræða varðandi það að upplýsa um umsvif aflandsfélaga og skattaskjóla á Íslandi er siðferðileg hlið málsins vegna þess að þetta grefur undan samneyslunni og þeim samfélagslegu verkefnum sem við erum sem samfélag að reyna að fjármagna með skattgreiðslum. Eða eins og einhver orðaði það svo ágætlega fyrr í dag: Þegar menn eru að reyna að kaupa sér far með fyrsta farrými en láta hina borga, ætla að láta aðrar leikreglur gilda um sig og sitt fjármagn en hinir sem eru í haftaviðjunum og vaxtaflækjum íslensku krónunnar þurfa að láta yfir sig ganga.
Ummæli fyrirlesarans sem hv. þingmaður var að vísa til eru ekki sakavottorð fyrir starfsemi aflandsfélaga, ekki vottorð fyrir ágæti þess að reka slík félög og soga tugi milljarða út úr hagkerfum inn í slíka starfsemi. Ég er í grundvallaratriðum mótfallin því að það gildi ekki einar leikreglur fyrir alla í einu samfélagi. Við eigum öll að sitja við sama borð. Við eigum að greiða okkar skatta og skyldur. Það eiga ekki sumir að komast upp með að geyma fjármuni sína í skattaskjólum á aflandseyjum (Forseti hringir.) einhvers staðar suður í höfum á meðan hinir þurfa að engjast í viðjum íslensku krónunnar.