145. löggjafarþing — 104. fundur,  29. apr. 2016.

rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.

711. mál
[15:08]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur svörin. Ég held að það sé hárrétt sem hv. þingmaður segir. Það þarf oft einhvers konar viðburð, eins og hinn gríðarlega gagnaleka Panama-skjalanna, þó að það sé ekkert óvænt. Við vitum öll sem upplifðum árin fyrir hrun hvernig eignarhaldi var háttað til að mynda á bönkunum. Það þurfti ekkert annað en fara inn á heimasíðuna og sjá eignarhaldið á þeim félögum sem áttu í bönkunum. Það var bara á heimasíðu bankanna. Það var erlent eignarhald. Svo vissum við ekkert hvert það náði. Þess mátti síðan sjá stað í rannsóknarskýrslu Alþingis. Þetta kemur ekkert á óvart. En það þarf oft meira til til að ná fram viðhorfsbreytingu. Það byggir oft á grunni og gildislægu mati sem er byggt upp á löngum tíma. Ég fylgi þessari spurningu eftir og spyr hv. þingmann hvort hún hafi trú á því að í kjölfarið muni verða sú viðhorfsbreyting sem er nauðsynleg gagnvart viðskiptalífi og skattundanskotum. Við getum þá nýtt okkur alla þá vinnu sem fram fer. Ég met það svo að þessi þingsályktunartillaga sé jákvætt framhald og innlegg í þær aðgerðir sem þó hefur verið farið í. Það má nefna upplýsingaskiptasamninga og sérreglur. Í umræðunni hafa komið fram viðbrögð fimm ríkja á vorfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans. Ég held að það sé afar jákvætt. Er það ekki líka á alþjóðavísu sem viðhorfsbreytingar eiga sér stað?