145. löggjafarþing — 104. fundur,  29. apr. 2016.

rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.

711. mál
[15:13]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Við ræðum hér tillögu til þingsályktunar um rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum. Tilefnið er ekki skemmtileg eins og við vitum flest. Hér hefur komið fram, m.a. hjá þingmönnum meiri hlutans, m.a. á samskiptamiðlum, að hér væri verið að ræða þetta á persónulegum nótum en ekki af skynsemi eins og rætt var um í háskólanum í hádeginu, en þá vil ég bara minna á að ástæðan er auðvitað mjög persónuleg. Hér inni sitja ráðherrar sem hafa orðið uppvísir að því að eiga félög í skattaskjólum. Forsætisráðherra hefur sagt af sér. Þannig að það er ekkert óeðlilegt að við krefjum fólk um svör og við höfum í rauninni ekki fengið þau nema að mjög litlu leyti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur ekki séð ástæðu til þess að ræða þessi mál sem er mjög miður.

Ég vil eins og hv. þingmaður hér á undan þakka stuðninginn frá hv. þm. Willum Þór Þórssyni vegna þess að ég held að það sé mikilvægt að við sameinumst um að reyna að uppræta og leysa þessi mál eins vel og við getum gert. Panama-lekinn sýnir kannski fyrst og fremst hvað góð rannsóknarblaðamennska getur haft í för með sér og hann bætir auðvitað við rannsóknarskýrslu Alþingis. Þannig að þetta er hægt. Það er hægt að ná í þessi gögn. Það þarf að gera það með slíkum hætti og hér þurfti að gera.

Það er ekki nóg að gefa þær upplýsingar sem íslenskir aðilar sem nefndir hafa verið hafa reynt að gefa, þeir segjast hafa borgað af þessu skatta og skyldur, þeir hafi gert grein fyrir þessu á skattframtölum, þeir hafi borgað allt sitt í ríkissjóð o.s.frv. Skattrannsóknarstjóri hefur sagt að hún geti ekki staðfest þessar staðhæfingar. Þær hafa því mjög takmarkað gildi sem slíkar.

Við vitum það, það er alveg kristaltært, að aflandsfélög eru sett upp í einhverjum tilgangi, þau eru ekki „af því bara“. Þá gætum við öll eins haft fjármunina okkar heima ef þetta er allt í lagi og hefur engan tilgang. Mér finnst mjög kjánalegt að halda því fram að það hafi engan tilgang að vera með auðævi sín í aflandsfélagi. Það er í alla staði slæmt út frá samfélagslegum sjónarmiðum. Þetta er vettvangur sem fyrirtæki nota til þess að færa hagnað sinn, m.a. héðan þar sem hann ætti annars að skattleggjast, þar sem við getum ekki endilega rakið öll tengslin. Hér var einmitt minnst á hvernig þetta var með bankana, það voru nú þvílíkir vefir og klækir og í sumum tilvikum mjög flókið að komast að því hverjir voru þar á bak við. Þetta er klárlega vettvangur sem gerir fólki og fyrirtækjum mögulegt að losna undan lögum sem gilda á Íslandi sem og í öðrum löndum. Þetta er meinvarp og þetta er ógnun við einstök ríki, eins og hér var einmitt rakið, sérstaklega fátækari ríki, og þetta er spilling. Þarna fyrirfinnst klárlega spilling. Þarna er þvegið fé, þarna eru fjárglæframenn og fíkniefnabarónar og guð má vita hvað. Svo eru þar eflaust heiðarleg fyrirtæki, ég ætla ekki að halda öðru fram. En tilgangurinn hlýtur að vera einhver, hann er ekki „af því bara“.

Hér hefur verið talað um að við verðum af 80 milljörðum hér á Íslandi á hverju ári bara vegna hefðbundinna skattsvika og fyrir tilstuðlan skattaskjóla. Við vitum ekki hvort verið er að koma arði af auðlindum okkar, sjávarauðlindinni eða öðrum auðlindum, erlendis í slík félög. Kannski á það eftir að koma upp í þessum skjölum. Við vitum það hins vegar að við hrunið fóru gríðarlegir fjármunir út úr hagkerfinu í akkúrat þessi félög, einkahlutafélög Íslendinga í skattaskjólum. Eins og ég hef sagt áður, þeir sem hafa geð í sér og telja það siðferðilega í lagi að koma sér hjá íslenskum lögum með þessum hætti, að athafna sig utan þess kerfis sem við búum hér við, mér finnst þeir ekki vera til þess bærir að stjórna hér samfélagi í gegnum ráðherradóm eða ríkisstjórn og hef þess vegna sagt að þeir eigi að segja af sér. Ég stend við þau orð. Mér finnst það ekki viðunandi málflutningur, hvorki af hálfu hæstv. forsætisráðherra né fjármála- og efnahagsráðherra, að tala með svo óábyrgum hætti, reyna að drepa málinu á dreif og gera lítið úr því og halda því jafnvel fram að Ísland sé skattaskjól.

Það er vert að geta þess þegar maður veltir því fyrir sér af hverju þessir herrar sjá ekki ástæðu til þess að segja af sér að margir hafa sagt af sér eða nokkrir alla vega fyrir utan forsætisráðherra. Allt eru þetta aðilar sem áttu félög fyrir margt löngu, sumir einhver nýrri, en þetta eru aðilar sem hafa ákveðið að stíga til hliðar vegna þess að þeir telja það heppilegra fyrir þau félög sem þeir hafa verið að starfa fyrir eins og lífeyrissjóði og önnur. En ríkisstjórnin sér ekki ástæðu til þess þrátt fyrir að vera í sambærilegum sporum. Það eru sem sagt einhverjir aðrir sem gera slíkt, en ekki þeir aðilar sem hér stýra landinu.

Mig langar að fara aðeins í gegnum hvers vegna Panama-skjölin varða femínista, það er mjög mikilvægt að við höldum því aðeins til haga. Í grein sem birtist á opendemocracy.net og var þýdd á Knúz, er vitnað til konu sem býr til afurð, selur hana og þarf að borga skatta vegna þess að skattheimtumennirnir koma til hennar, þannig að hún kemst ekki hjá því að borga. Þetta er auðvitað ekki skattamálið sem við erum að ræða. Við erum að ræða um fólkið sem trónir efst á toppnum í fjárhagslegum skilningi sem finnur sér leiðir til að komast undan því að borga skatta og það bitnar á fólki eins og akkúrat þessu fátæka fólki. Þetta endurspeglar líka valdastöður vegna þess að flestir sem koma fram í Panama-skjölunum eru karlmenn, sem er líka áhugavert út af fyrir sig. Hér var einmitt farið inn á það hversu mikið skattaskjólin kosta okkur, þetta eru 2 billjónir íslenskra króna sem þetta skiptir máli. Við þurfum að hafa í huga að þetta er eitt af því sem verður til þess að fátækt fólk víða um heim hefur ekki tök á því að fá menntun eða jafnvel ekki heilbrigðisþjónustu eða borða eða guð má vita hvað. Að geta ekki náð í tekjur frá auðugum einstaklingum eða fyrirtækjum verður til þess að við þurfum að hækka óbeina skatta. Og hvað sjáum við ekki gerast hér? Við höfum verið að lækka óbeina skatta að einhverju leyti, en það endurspeglast ekkert í vöruverðinu sem við eigum að fá. Þetta hefur í rauninni mest áhrif á það sem hafa lægstar tekjurnar og það eru jú alla jafna konur víða um heim. Þetta er eitt af því sem mér finnst að við þurfum að hafa í huga, því að þeim sem finnst þetta siðferði í lagi, að leyna hagnaði sínum eða draga hann úr landi eins og hér hefur verið farið yfir, borga auðvitað ekki til velferðarkerfisins eins og þeir ættu að gera, til fólksins sem framleiðir og skapar vinnuframlag dagsins í dag og auðvitað framtíðarinnar.

Við eigum að berjast fyrir sanngjarnara kerfi. Við eigum að berjast fyrir betri stefnu í stjórnmálum þannig að bæði fátækt og brjálæðislegur auður verði ekki til staðar og allir, bæði konur og karlar, komi að ákvarðanatökum á öllum stigum. Eins og forsætisráðherra Kanada sagði, þá er árið 2016 runnið upp og allt annað væri í rauninni fáránlegt. Við þurfum að uppræta skattkerfi sem gerir auðugasta fólkinu kleift að komast hjá því að greiða sinn skerf til samfélagsins.

Virðulegi forseti. Eins og gjarnan þá æðir tíminn áfram. Ég vil að lokum bara segja að stjórnmálamenn, hverjir svo sem þeir eru hverju sinni, sem mæla ekki afdráttarlaust gegn aflandsfélögum og starfsemi aflandsfélaga, hljóta að vera í þeim sporum að skilja ekki hvaða áhrif þau hafa á efnahagsstarfsemina, hvaða áhrif þau hafa á almenning í landinu og til framtíðar litið hvernig áhrifin verða á öll velferðarsamfélög. Ég verð að segja að mér hefur því miður fundist hæstv. ráðherrar þessarar ríkisstjórnar vera í þeim sporum að þeir virðast ekki átta sig á þessari stöðu.