rannsókn á aflandsfélögum Íslendinga og skattundanskotum.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur fyrir ræðuna. Ég ætla að víkja að þingsályktunartillögunni og fara aðeins tæknilega í málið. Ég sagði fyrr í andsvari við hv. þm. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur að ég styddi þessa tillögu og ég styð hana út frá þeim markmiðum sem koma fram aftast í henni. Ég tengi leiðirnar tvær sem koma fyrst fram í tillögunni við þau tvö markmið. Fyrri leiðin er að setja á fót rannsóknarnefnd, í samræmi við þau lög sem gilda um rannsóknarnefndir, til að ná utan um þetta umfang. Seinni leiðin tengist seinna markmiðinu og er að ná til þeirra sem hafa skotið undan sköttum. Þá er um að ræða sérstakan rannsóknarhóp sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra mun stofna sem nýtir þá vinnu sem rannsóknarnefndin hefur unnið.
Það kemur fram í fyrri leiðinni, sem snýr að fyrra markmiðinu um að meta umfangið, að rannsóknarnefndin miðli upplýsingum og niðurstöðum til skattyfirvalda og annarra yfirvalda. Er ekki óhjákvæmilegt í ljósi þeirrar vinnu sem þegar hefur átt sér stað, til að mynda á grunni þeirra gagna sem voru keypt eða skattrannsóknarstjóri fékk heimild til að kaupa, að það verði einhvers konar samstarf á milli rannsóknarnefndarinnar og skattyfirvalda, í ljósi þeirra aðgerða sem þó þegar hefur verið farið í? Það kemur (Forseti hringir.) mögulega betur og ítarlegar fram í vinnu stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.